Upphitun

Upphitunaræfingar - hvers vegna?

 

Vegna þess að upphitunaræfingar...

•          ...mýkja og hita upp líkamann.

•          ...hrista saman hópinn og setja alla í gír fyrir það sem í vændum er.

•          ...skerpa fókus og einbeitingu.

 

Í raun ætti enginn leiklistartími eða æfing að hefjast án upphitunar. Upphitunaræfingar gegna í fyrsta lagi því augljósa hlutverki að liðka og hita upp líkamann og koma þannig í veg fyrir að líkamleg átök valdi meiðslum. Þetta þekkist  úr íþróttunum. En upphitun í leiklist gegnir ekki síður því hlutverki að samstilla hópinn og koma öllum í rétta stemningu til að fara að vinna.

Í leiklist erum við að vinna með okkur sjálf, bæði líkama og sál. Þess vegna væri það glapræði að ætla heilum hóp að byrja án upphitunar á leiklistaræfingum. Einn tveir og túlka! Við þurfum að koma okkur í rétt ástand - komast í stuð - áður en við byrjum. Hópar eru auðvitað ólíkir, og þess vegna er misjafnt hvaða æfingar henta hvaða hóp. En vel skipulögð og góð upphitun er eins og vítamínsprauta fyrir alla. Hún kemur líkamanum í startholurnar, skerpir einbeitingu og ræsir ímyndunaraflið.

Sumir upphitunarleikir eru þannig að það er hægt að leika þá daglega án þess að fá leið á þeim. Það er alger óþarfi að vera að finna upp á einhverju nýju á hverjum degi. Njótið þess að verða betri í leiknum á hverjum degi, og finna hvernig hópurinn samstillist með hverri æfingu. Æskilegt er að stjórnandi taki fullan þátt í æfingunum. Upphitun þarf heldur ekki að einskorðast við leikhópinn ef verið er að vinna sýningu, heldur er meira en sjálfsagt að tæknifólk og aðrir hlutaðeigandi taki þátt.

 

 

 





Letur breytingar


Leit