Já! Við skulum...
Þessi æfing er síbreytileg og alltaf skemmtileg. Hún losar um hömlur og allir fá að haga sér svolítið kjánalega, en sem hluti af hóp. Hér er lykillinn að segja strax já, hver sem tillagan er, og nálgast hvert verkefni með gleði. Ath. að sjálfsögðu gildir hér sú grundvallarregla að stinga ekki upp á neinu sem gæti ofboðið siðferðiskennd eða verið óþægilegt fyrir þátttakendur að nokkru leyti.
-
Hópurinn stendur nokkurn veginn í hring eða þannig að allir sjái hina í hópnum vel.
-
Einn segir: Eigum við öll að...? og stingur svo upp á einhverju mjög einföldu. Gæti til dæmis
verið: Eigum við öll að hoppa? eða: Eigum við öll að setjast niður?
-
Hópurinn svarar, hátt og skýrt saman í kór: Já! Við skulum hoppa! Og svo hoppa allir saman þangað til einhver annar hrópar upp: Eigum við öll að hlæja? eða eitthvað annað sem honum/henni dettur í hug.
Gott er að ítreka að hafa verkefnin einföld til að byrja með. Það skiptir líka máli að hópurinn svari alltaf jafn ákveðið JÁ! burtséð frá því sem stundið var upp á. Þegar búið er að leika í smá stund, má gjarnan stinga upp á ballettdansi, óperusöng eða fallhlífarstökki, því eftir nokkrar umferðir af Já! við skulum? er farið að losna um hömlur, og hópurinn hættur að víla hlutina fyrir sér.
Ég hef heyrt að þú sért snillingur!
Þessi æfing er mjög gott framhald af Já, við skulum?
-
Skipt í pör. A og B.
-
A byrjar á því að segja við B: Ég hef heyrt að þú sért algjör snillingur í því að? og nefnir svo einhverja sáraeinfalda athöfn eins og: klóra þér/klappa saman höndum/lyfta upp hægri fæti.
-
B tekur hrósinu mjööög vel, og svarar: Já, ég er algjör snillingur í því að klóra mér/klappa saman höndunum/lyfta upp hægri fæti.
-
A segir þá: Myndir þú kannski vilja klóra þér/klappa saman höndunum/lyfta upp hægri fæti fyrir mig?
-
B bregst vel við bóninni og gerir eins og um var beðið. A hrósar B í hástert og þakkar fyrir. Ath. þetta síðasta er mjög mikilvægt.
-
Svo snýst leikurinn við og B segist hafa heyrt að A sé snillingur í einhverju.
Látið leikinn ganga nokkra stund, þannig að hvert par skiptist nokkrum sinnum á. Ítrekið að hafa hlutina einfalda, hlægilega einfalda jafnvel, í upphafi. Eftir nokkrar umferðir má biðja um eitthvað aðeins ævintýralegra. Lykilatriði er að segja alltaf Já, ég er snillingur, og hika ekki við að framkvæma hlutinn hversu fáránlegur sem hann er. Ef beðið er um flik-flakk og heljarstökk, skiptir ekki máli þó viðkomandi geti ekki gert það, en hann/hún verður að framkvæma eitthvað sem gæti táknað flikk-flakk og heljarstökk. Og mótleikarinn hrósar jafnt sem áður. Enn á ný skal þó ítrekað að biðja ekki um neitt ósæmilegt eða eitthvað sem þátttakandi myndi ekki vilja gera sjálfur.
Óður til Margritte: Þessi flaska er ekki flaska
(Leikur frá Augusto Boal og úr leikhússport-heiminum)
Belgíski listmálarinn og súrrealistinn Réné Margritte lék sér gjarnan að því að mála myndir með texta sem truflaði skynjun hlutanna sem þær sýndu. Fræg er til dæmis mynd af pípu sem undir stendur: Þetta er ekki pípa. Þessar myndir eru m.a. kveikjan að þessum ágæta leik, sem bæði er fín leið til þess að örva ímyndunaraflið og hin besta skemmtun í leiðinni.
Þessi leikur felst í því að láta hóp hafa einhvern hlut, og hver þátttakenda verður að finna nýja notkun fyrir hlutinn, og sýna það með líkamanum. Sleifin getur þannig orðið að kylfu, byssu, regnhlíf, bakklóru, hækju, brú, fánastöng, veiðistöng, ár, flautu, ör, spjót, fiðlu, nál, barmnælu, ungabarni, skóflu, hausabankara og raunar hverju sem er.
-
Látið þátttakendur standa í hring og látið svo hlutinn ganga hringinn.
-
Ath. að gefa ekki tíma til að velta þessu mikið fyrir sér, heldur á hver þátttakandi að segja: Þessi sleif er ekki sleif heldur? um leið og hann/hún fær hana í hendur. Því hraðar sem leikurinn er látinn ganga, þeim mun skemmtilegri verður útkoman.
-
Hvetjið þátttakendur til þess að sýna hvernig hluturinn er notaður ef það á við.
-
Látið hlutinn jafnvel ganga fleiri hringi, sérstaklega ef um smærri hóp er að ræða.
-
Auðvitað er bannað að segja sama hlutinn tvisvar!
-
Allar hugmyndir eru jafngóðar, þó sumar séu ef til vill langsóttari en aðrar. Stöðvið ekki sköpunarflæðið með því að krefja of mikilla skýringa. Látið leikinn frekar ganga.