Nýr hópur er viðkvæmur. Í upphafi er heillavænlegast að leggja áherslu á hópæfingar, og forðast það að taka út einstaklinga. Forðastu líka að nota æfingar í upphafi sem krefjast mikillar líkamlegrar snertingar. Slíkt er betra að geyma þar til hópurinn hefur byggt upp svolítið traust. Með þessum æfingum teljast hinar svokölluðu traustæfingar sem krefjast þess að þátttakendur grípi hver annan eða beri. Fyrir snertifælna og þá sem hafa áhyggjur af holdafari sínu gera slíkar æfingar ekkert nema skaða!
Hér eru hugmyndir að einfaldari og árangursríkari traustæfingum.