Vigdís Hrefna Pálsdóttir

 

Vigdís Hrefna Pálsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild LHÍ 2002 og lauk mastersprófi frá Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow.

 

Hún hefur farið með fjölmörg hlutverk í Þjóðleikhúsinu, hjá Leikfélagi Akureyrar og leikhópum.

 

Meðal nýlegustu verkefna hennar í Þjóðleikhúsinu eru Lér konungur, Allir synir mínir, Hænuungarnir, Oliver, Ástin er diskó lífið er pönk, Macbeth, Sumarljós, Kardemommubærinn og Sædýrasafnið. Hún lék hér einnig í Með fullri reisn, Jóni Gabríel Borkmann, Norðri, Edith Piaf, Dýrunum í Hálsaskógi, Mýrarljósi og Skilaboðaskjóðunni.

Vigdís Hrefna lék Auði í Litlu hryllingsbúðinni hjá LA, í Höllu og Kára og Grettissögu í Hafnarfjarðarleikhúsinu og Riddurum hringborðsins: Með veskið að vopni hjá Kvenfélaginu Garpi,  

Verkefni Vigdísar Hrefnu í Þjóðleikhúsinu í vetur eru Hreinsun, Heimsljós og Vesalingarnir.

 

Síðast uppfært í ágúst 2011.





Letur breytingar


Leit