Áslaug Jónsdóttir

 

Áslaug Jónsdóttir stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1984-1985. Hún nam við Listiðnaðarskólann í Kaupmannahöfn árin 1985-1989 og lauk lokaprófi frá teikni- og grafíkdeild skólans. Frá því að Áslaug lauk námi hefur hún starfað sem teiknari, rithöfundur, grafískur hönnuður og bókverkakona. Hún hefur skrifað og myndskreytt fjölda barnabóka og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis.

 

Meðal bóka sem Áslaug hefur sent frá sér, sem höfundur bæði texta og mynda, eru Gullfjöðrin, Fjölleikasýning Ástu, Stjörnusiglingin, Á bak við hús - Vísur Önnu, Einu sinni var raunamæddur risi, Sex ævintýri, Unugata, Eggið, Gott kvöld og Ég vil fisk! Bækurnar Nei! sagði litla skrímslið, Stór skrímsli gráta ekki, og Skrímsli í myrkinu og fleiri bækur um litla og stóra skrímslið samdi hún í samvinnu við Kalle Güettler og Rakel Helmsdal. 

 

Bækur Áslaugar hafa verið þýddar á fjöldamörg tungumál og hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Meðal annars hefur hún tvisvar fengið Dimmalimm verðlaunin, íslensku myndskreytiverðlaunin, fyrir bækurnar Nei! sagði litla skrímslið og Gott kvöld. Bóksalar völdu Nei! sagði litla skrímslið (2004) og Gott kvöld (2005) bestu barnabækur ársins. Einnig hlaut Áslaug Barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur fyrir Gott kvöld árið 2005 og var tilnefnd til Norrænu Barnabókaverðlaunanna fyrir sömu bók árið 2006. Áslaug hlaut Barnabókaverðlaun Vestnorrænaráðsins 2002 ásamt Andra Snæ Magnasyni fyrir Söguna af Bláa hnettinum.

 

Fyrsta leikrit Áslaugar, Gott kvöld sem sýnt var í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu, hlaut Grímuna – Íslensku leiklistarverðlaunin 2008 sem besta barnasýning leikársins. Fyrir sama leikrit var Áslaug tilnefnd til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 2010. Brúðuleikverkið Sindri silfurfiskur var frumsýnt í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu árið 2009 og tilnefnt til Grímuverðlaunanna í flokknum besta barnasýning leikársins. Sindri silfurfiskur syndir um heimsins höf og hefur í tvígang verið valinn til sýningar á alþjóðlegar barnaleikhússhátíðir, BIBU 2010 og ASSITEJ 2011.

 

 





Letur breytingar


Leit