ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON hefur leikstýrt fjörutíu leiksýningum við Þjóðleikhúsið, þar af mörgum af vinsælustu sýningum leikhússins. Hann hefur einnig starfað við Þjóðleikhúsið sem leikari allt frá árinu 1968.
Þórhallur hefur meðal annars stýrt hér frumflutningi á mörgum íslenskum verkum, þar af níu leikritum eftir Ólaf Hauk Símonarson, Milli skinns og hörunds, Bílaverkstæði Badda, Hafinu, Gauragangi, Þreki og tárum, Kennarar óskast, Meiri gauragangi, Græna landinu og nú síðast Bjart með köflum. Af öðrum leikstjórnarverkefnum Þórhalls hér má nefna Sölumaður deyr, Ofviðrið, Kæru Jelenu, Emil í Kattholti, Ferðalok, Oleönnu, Tröllakirkju, Solveigu og Vér morðingjar. Nýjustu leikstjórnarverkefni Þórhalls við Þjóðleikhúsið eru Blái hnötturinn, Vatn lífsins, Jón Oddur og Jón Bjarni, Halti Billi, Koddamaðurinn, Leitin að jólunum, Hart í bak, Gott kvöld og Sindri silfurfiskur.
Þórhallur hefur einnig leikstýrt víða utan Þjóðleikhússins, meðal annars hjá Leikfélagi Reykjavíkur, nú síðast Söngvaseiði, og í Nemendaleikhúsinu. Þórhallur hefur einnig starfað töluvert sem leikstjóri í brúðuleikhúsi og hafa sýningar hans Tröllaleikir, Bannað að hlæja og Leifur heppni verið sýndar í fjölmörgum löndum.
Þórhallur er listrænn stjórnandi Kúlunnar, barnasviðs Þjóðleikhússins.
Leiksýningarnar Leitin að jólunum (2006) og Gott kvöld (2008), sem Þórhallur leikstýrði, hlutu hvor um sig Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins.
Þórhallur leikstýrir Bjart með köflum í Þjóðleikhúsinu í vetur, sem er fertugasta leikstjórnarverkefni hans við húsið. Leikhúsið sýnir einnig sýningu hans frá fyrra ári, Sindra silfurfisk.
Síðast breytt í mars 2011.