Nanna Kristín Magnúsdóttir útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1999.
Í Þjóðleikhúsinu hefur Nanna Kristín leikið Margréti villistelpu í Bláa hnettinum, Klöru í Laufunum í Toscana, Ástu í Vatni lífsins, Roxönu í Cyrano frá Bergerac, Ingeborg í Viktoríu og Georg, Evu í Veislunni, Báru í Rauða spjaldinu, lafði Önnu í Ríkarði þriðja, Hönnu í Vegurinn brennur, Helenu Niles í Sorgin klæðir Elektru, Brynju í Böndin á milli okkar, Ingveldi og fleiri hlutverk í Öxinni og jörðinni og ýmis hlutverk í Virkjuninni. Hún lék einnig í Fagnaði.
Þá lék hún Góneríl í Lé konungi hjá L.R., Maríu í Stjörnum á morgunhimni og kvenhlutverkið í Leikjum í Iðnó, einleikinn Bannað að blóta í brúðarkjól í Kaffileikhúsinu, Lúlú í Shopping & Fucking hjá Egg-leikhúsinu í Nýlistasafninu og Písl í Diskópakki, Benvólíó í Rómeó og Júlíu og Marsibil í Kringlunni rústað hjá Vesturporti. Nanna Kristín er einn af stofnendum Vesturports.
Hún hefur leikið í fjölda sjónvarps- og stuttmynda, meðal annars í kvikmyndunum Sporlaust, Villiljósi, Börnum, Foreldrum, Sveitabrúðkaupi og Kóngavegi.
Nanna Kristín hlaut Edduverðlaunin fyrir Foreldra sem leikkona, handritshöfundur og framleiðandi og var tilnefnd sem leikkona fyrir Sporlaust og Brim. Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir Rauða spjaldið.
Nanna Kristín leikur í Svörtum hundi prestsins hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
(September 2011).