María Pálsdóttir

 María Pálsdóttir útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1999. Hún var fastráðin hjá Leikfélagi Akureyrar strax eftir útskrift og lék þar Maríu í Klukkustrengjum, Siggu í Blessuð jólin og Ellie-May í Tobacco Road. Veturinn 2000-2001 var hún við nám í sænsku deild leiklistarskólans í Helsinki. Hún lék aftur hjá Leikfélagi Akureyrar eftir námið, Maríu í Blessað barnalán, Bonfilu í Slövum! og Helgu í Gullbrúðkaupi. Hún er meðlimur í norræna leikhópnum Subfrau sem á að baki þrjár uppfærslur og kom til Íslands 2004 með This is not my Body. Hún sinnti starfi deildarstjóra fræðsludeildar Þjóðleikhússins 2004-2005. Hún lék með leikfélaginu Tóbíasi í Saumstofunni 30 árum síðar. María kom fyrst til starfa við Þjóðleikhúsið í hlutverki Michelle í Veislunni og lék hér einnig Nýlendustúlku í Dínamíti, kærustu, frú Hallveigu og Sölku Völku í Halldór í Hollywood og ýmis hlutverk í Virkjuninni. Hún lék ófrísku konuna í Eldhúsi eftir máli.




Letur breytingar


Leit