Kristbjörg Kjeld útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1958 og hefur leikið fjölda burðarhlutverka hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur, leikhópum og í kvikmyndum.
Kristbjörg lék sitt fyrsta hlutverk hér í Þjóðleikhúsinu á lokaárinu í skólanum, Katrínu í Horft af brúnni. Sama ár lék hún titilhlutverkið í Dagbók Önnu Frank og alla tíð síðan hefur hún starfað við Þjóðleikhúsið og skipað sér í röð okkar fremstu leikara.
Af minnisstæðum hlutverkum Kristbjargar í Þjóðleikhúsinu má nefna Alison í Horfðu reiður um öxl, Ragnheiði Brynjólfsdóttur í Í Skálholti, Ingunni í Pétri Gaut, Barblin í Andorra, Annie Sullivan í Kraftaverkinu, Mrs. Martin í Sköllóttu söngkonunni, Steinunni í Galdra-Lofti, Víólu í Þrettándakvöldi, Normu í Vér morðingjar, Tzeitel í Fiðlaranum á þakinu, Hildu Wangel í Sólness byggingarmeistara, Steinunni í Svartfugli, titilhlutverkið í Maríu Stúart, Ikutak í Inuk, Góneríl í Lé konungi, Donu Leocadiu Zorilla de Weiss í Ef skynsemin blundar, Ingunni í Stundarfriði og Evu í Garðveislu.
Önnur minnisstæð hlutverk Kristbjargar í Þjóðleikhúsinu á síðari árum eru Vernharða í Heimili Vernhörðu Alba, Ása í Pétri Gaut, Kate Keller í Allir synir mínir, ýmis hlutverk í Stræti, Tobba og Sína í Sönnum sögum af sálarlífi systra, Ingunn í Stakkaskiptum, Malla í Taktu lagið, Lóa, Heiðveig í Krabbasvölunum, Gunnsa í Bjarti og Rauðsmýrarmaddaman í Ástu Sóllilju í Sjálfstæðu fólki, tengdamóðir Grúsju og fleiri hlutverk í Krítarhringnum í Kákasus, Lillian Dale í Vér morðingjar, kona í Þebu í Antígónu, Esme Allen í Vilja Emmu, Vronskí greifafrú í Önnu Kareninu, frú Ólfer í Strompleiknum Trínu í Halta Billa, Lilja í Græna landinu, Petrovna í Svartri mjólk, frú Kilbride í Mýrarljósi og Franziska Nietzsche og fleiri hlutverk í Dínamíti.
Kristbjörg hefur ennfremur vakið athygli fyrir leik sinn hér á allra síðustu árum í Sumardegi, Utan gátta, Hænuungunum og Heddu Gabler.
Kristbjörg hefur leikstýrt nokkrum sýningum hér við húsið, meðal annars Rympu á ruslahaugnum, Herbergi 213 og Ástarsögu aldarinnar.
Hún var einn af stofnendum leikhópsins Grímu og lék með honum Estelle í Læstum dyrum. Ennfremur fór hún með hlutverk Ranévskaju í Kirsuberjagarðinum hjá Frú Emilíu og Kolbrúnar í Einhver í dyrunum hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Kristbjörg hefur leikið töluvert í kvikmyndum. Meðal þeirra eru 79 af stöðinni, Punktur, punktur, komma, strik, Í skugga hrafnsins, Kristnihald undir Jökli, Fíaskó, Mávahlátur, Reykjavík Guesthouse, Hafið, Kaldaljós og Mamma Gógó.
Kristbjörg hlaut Grímuna - Íslensku leiklistarverðlaunin fyrir leik sinn í Hænuungunum og var tilnefnd til sömu verðlauna fyrir Halta Billa, Mýrarljós og Heddu Gabler. Kristbjörg hlaut Menningarverðlaun DV í leiklist fyrir leik sinn í Taktu lagið Lóa. Hún hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2007.
Kristbjörg hlaut Edduverðlaunin fyrir Mömmu Gógó, Kaldaljós og Mávahlátur. Hún hlaut verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki á kvikmyndahátíðinni Polar Lights í Múrmansk í Rússlandi fyrir hlutverk sitt í Mömmu Gógó.
Kristbjörg leikur í Svörtum hundi prestsins og Afmælisveislunni hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
(September 2011).