
Jón Páll útskrifaðist árið 2000 frá East 15 Acting School í London og lék í uppfærslu Young Vic Theatre Company á The Three Musketeers sama ár. Hann hefur síðan meðal annars tekið þátt sem leikari í uppfærslum hjá Þjóðleikhúsinu, Hafnarfjarðarleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar auk þess að vinna með sjálfstæðum leikhópum. Má þar nefna Syngjandi í rigningunni, Cyrano, Grettissögu, Gaggalagú, Grís, Meistarann og Margarítu, Rauðu Skórnir, Óliver, Úlfhamssaga, Fagnaður og Hinn Útvaldi í Loftkastalanum, Pakkið á móti hjá L.A. og Mindcamp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Hann hefur einnig leikstýrt bæði atvinnu og áhugaleikhópum. Hann leikstýrði “Þú veist hvernig þetta er” í Stúdentaleikhúsinu sem valin var Áhugaverðasta áhugaleiksýning leikársins 2004-2005 og sýnd í Þjóðleikhúsinu. Jón Páll leikstýrði Frelsi eftir Hrund Ólafsdóttur í Þjóðleikhúsinu haustið 2005.