Hilmir Snær Guðnason lauk námi við Leiklistarskóla Íslands árið 1994.
Hann hefur farið með fjölmörg veigamikil hlutverk í Þjóðleikhúsinu, meðal annars í Fávitanum, West Side Story, Þreki og tárum, Hamingjuráninu, Leitt hún skyldi vera skækja, Þremur systrum, Hamlet, Listaverkinu, Bróður mínum Ljónshjarta, Tveim tvöföldum, Fedru, Draumi á Jónsmessunótt, Horfðu reiður um öxl, Rauða spjaldinu, Veislunni, Með fulla vasa af grjóti, Ríkarði þriðja, Sorgin klæðir Elektru, Öxinni og jörðinni, Dínamíti, Hjónabandsglæpum og Ívanov.
Hann lék í söngleikjunum Hárinu og Rocky Horror hjá Flugfélaginu Lofti og lék í Beðið eftir Godot, Amadeusi, Milljarðamærin snýr aftur, Faust, Dúfunum, Ofviðrinu og Strýhærða Pétri í Borgarleikhúsinu.
Hann lék meðal annars í kvikmyndunum Agnesi, 101 Reykjavík, Englum alheimsins, Myrkrahöfðingjanum, Reykjavík-Guesthouse, Hafinu, Mávahlátri og Brúðgumanum og sjónvarpsmyndinni Allir litir hafsins eru kaldir. Hann lék í þýsku kvikmyndunum Blueprint og Erbsen auf halb sechs og bresku myndinni Guy-x.
Hilmir Snær leikstýrði Krákuhöllinni hjá Nemendaleikhúsi LHÍ, Töfraflautunni í Íslensku óperunni, Hinn fullkomni maður á vegum Draumasmiðjunnar, Gullna hliðinu og Böndunum á milli okkar í Þjóðleikhúsinu og Abigail heldur partí, Degi vonar, Fjölskyldunni og Kirsuberjagarðinum í Borgarleikhúsinu.
Hilmir Snær hefur hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímuverðlaunanna og hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í Veislunni og Ég er mín eigin kona og leikstjórn sína á Fjölskyldunni. Hann fékk Menningarverðlaun DV í leiklist fyrir túlkun sína á titilhlutverkinu í Hamlet. Hilmir hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í Mávahlátri. Hann hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2000.
Hilmir Snær leikur í Listaverkinu, Heimsljósi og Dagleiðinni löngu hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
(Texta síðast breytt í ágúst 2011).