Guðrún Snæfríður Gísladóttir

 

Guðrún Snæfríður Gísladóttir lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands 1977. Hún lék fyrst hjá Þjóðleikhúsinu en starfaði svo um árabil með Alþýðuleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur.

Meðal helstu hlutverka hennar hjá LR má nefna Öldu í Degi vonar, Elenu í Vanja frænda og titilhlutverkin í Sölku Völku og Agnesi barni guðs, en fyrir síðasttalda hlutverkið hlaut hún Menningarverðlaun DV 1986.

Guðrún hefur leikið í ýmsum kvikmyndum, meðal annars Fórninni eftir Tarkovskí.

Guðrún hefur verið fastráðin við Þjóðleikhúsið síðustu ár. Meðal hlutverka hennar hér eru Guðrún í Stundarfriði, Martíríó í Heimili Vernhörðu Alba, Ísbjörg í Ég heiti Ísbjörg ég er ljón, Pálína í Mávinum, Katrín í Sönnum sögum af sálarlífi systra, Guðrún í Stakkaskiptum, Sylvía Gellburg í Glerbrotum, Ingiríður í Tröllakirkju, Natalja Ívanonvna í Þremur systrum, Gunnela í Krabbasvölunum, Óvinurinn í Gullna hliðinu og Hippolíta og Titanía í Draumi á Jónsmessunótt.

Hún lék ennfremur með hlutverk Dóru Maar í Ástkonum Picassos, Lenu í Laufunum í Toscana, Viktoríu í Viktoríu og Georg, skúringakonu og móðurina í Herjólfur er hættur að elska, hertogafrúna af Jórvík í Ríkarði þriðja, Sigrúnu í Veginum brennur, Kristínu í Sorgin klæðir Elektru, eiginkonuna í Norðri, kattakonuna í Mýrarljósi og Alwine í Dínamíti. 

Meðal nýlegustu verkefna Guðrúnar hér eru Pétur Gautur, Leitin að jólunum, Engisprettur, Þrettándakvöld, Brennuvargarnir, Íslandsklukkan, Leitin að jólunum og Allir synir mínir.

Guðrún hlaut Grímuna-Íslensku leiklistarverðlaunin fyrir Mýrarljós og var tilnefnd fyrir Íslandsklukkuna, Vegurinn brennur og Þrettándakvöld.

 

Guðrún Snæfríður leikur í Heimsljósi, Dagleiðinni löngu og Íslandsklukkunni í Þjóðleikhúsinu í vetur.

 

 

Síðast breytt í ágúst 2011.

 





Letur breytingar


Leit