Gretar Reynisson lauk myndlistarnámi frá Myndlistar- og handíðaskóla Íslands 1978 og var við framhaldsnám í Amsterdam 1978-79.
Gretar hefur haldið um tuttugu einkasýningar, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Galleríi i8, Listasafni ASÍ og víðar og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis, meðal annars á Listasafni Íslands, Kjarvalsstöðum, í Nýlistasafninu og með Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík. Hann á verk í eigu safna, svo sem Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Háskólans og Nýlistasafnsins.
Gretar hóf feril sinn sem leikmyndahöfundur árið 1980 og hefur gert um 60 leikmyndir.
Gretar hefur gert leikmyndir hér í Þjóðleikhúsinu við Milli skinns og hörunds, Bílaverkstæði Badda, Stóran og smáan, Rómeó og Júlíu, Gleðispilið, Stræti, Ferðalok, Tröllakirkju, Sem yður þóknast, Villiöndina, Meiri gauragang, Gamansama harmleikinn, Solveigu, Krítarhringinn í Kákasus, Antígónu, Önnu Kareninu, Halta Billa, Græna landið, Þetta er allt að koma, Pétur Gaut, Ívanov, Utan gátta, Gerplu og Allir synir mínir.
Hjá Leikfélagi Reykjavíkur gerði hann leikmyndir fyrir Draum á Jónsmessunótt, Gísl, Hamlet, Djöflaeyjuna, Ljós heimsins, Lé konung, Don Quixote, Draumleik og Ófögru veröld.
Meðal annarra verkefna hans sem leikmyndarhöfundar eru Óþelló og Draumur á Jónsmessunótt hjá Nemendaleikhúsinu, Rhodymenia Palmata, Kirsuberjagarðurinn og Makbeð hjá Frú Emilíu og Ofviðrið hjá Riksteatern í Svíþjóð.
Gretar hefur hlotið Grímuna-Íslensku leiklistarverðlaunin fimm sinnum, fyrir leikmynd í Þetta er allt að koma, Draumleik, Ófögru veröld og Utan gátta, og fyrir búninga í Utan gátta. Hann var tilnefndur til sömu verðlauna fyrir Halta Billa, Græna landið, Pétur Gaut, Ívanov og Gerplu. Hann hlaut menningarverðlaun DV fyrir Ljós heimsins. Gretar hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2006.
Gretar gerir leikmynd fyrir Heimsljós og Afmælisveisluna hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
(September 2011).