Friðrik Friðriksson

 

 

Friðrik Friðriksson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1998. Síðan þá hefur hann leikið fjölda hlutverka bæði á sviði og í sjónvarpi, meðal annars hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Leikfélagi Íslands.

Meðal nýlegustu verkefna Friðriks í Þjóðleikhúsinu eru Bjart með köflum, Hænuungarnir, Oliver, Brennuvargarnir, Kardemommubærinn, Engisprettur, Vígaguðinn, Skilaboðaskjóðan og Sumarljós. Hann lék hér einnig í Böndunum á milli okkar, Dýrunum í Hálsaskógi, Cyrano frá Bergerac, Veislunni, Rakstri, Allir á svið og Ríkarði þriðja. 

Hjá Leikfélagi Reykjavíkur lék Friðrik titilhlutverkin í Pétri Pan og Móglí, í Ofanljósi, Djöflunum, Lé konungi og Vorið vaknar. Friðrik lék í Sjeikspír eins og hann leggur sig, Trúðleik og Eldað með Elvis hjá Leikfélagi Íslands.

Friðrik leikstýrði Húmanimal hjá leikhópnum Ég og vinir mínir í Hafnarfjarðarleikhúsinu og sama leikhópi í sýningunni Verði þér að góðu hér í Þjóðleikhúsinu. Friðrik hefur leikstýrt Sögustund í Þjóðleikhúsinu undanfarin þrjú ár, fyrst sýningu sem byggði á Búkollu, þá sýningu sem byggði á ævintýrinu Karlsson, Lítill, Trítill og fuglarnir og nú í haust sýningu byggðri á Hlina kóngssyni. Hann var aðstoðarleikstjóri í sýningu Þjóðleikhússins á Lé konungi.

 

Friðrik var tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir leik sinn í Legi og Sumarljósi og leikstjórn á Húmanímal.

 

Verkefni Friðriks hér í Þjóðleikhúsinu í vetur eru leikstjórn á Sögustund og leikur í Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu, Vesalingunum og Bjart með köflum.

 

Síðast uppfært í ágúst 2011.





Letur breytingar


Leit