Finnur Arnar Arnarson úrskrifaðist úr fjöltæknideild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1991. Hann hefur haldið fjölda einksýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis, og hefur gert leikmyndir fyrir fjölda sýninga.
Hér í Þjóðleikhúsinu hefur Finnur hannað leikmynd fyrir Heddu Gabler, Íslandsklukkuna, Sumarljós, Pabbastrák, Cyrano frá Bergerac, Kardemommubæinn og West Side Story.
Fyrir Hafnarfjarðarleikhúsið hannaði hann leikmyndir fyrir Höllu og Kára eftir Hávar Sigurjónsson, Sögu Grettis, Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson, Platonov, Vitleysingana eftir Ólaf Hauk Símonarson, Sölku Völku eftir Halldór Laxness, Við feðgarnir eftir Þorvald Þorsteinsson, Síðasta bæinn í dalnum eftir Loft Guðmundsson, Að eilífu eftir Árna Ibsen, Birting eftir Voltaire og Himnaríki eftir Árna Ibsen.
Í Borgarleikhúsinu hannaði hann leikmynd fyrir Rautt brennur fyrir, Sól og Mána, Kryddlegin hjörtu og Stjórnleysingi ferst af slysförum.
Hann gerði leikmynd fyrir Falið fylgi, Óvita eftir Guðrúnu Helgadóttur og Vefarann mikla frá Kasmír eftir Halldór Laxness hjá Leikfélagi Akureyrar og Janis 27 eftir Ólaf Hauk Símonarson í Íslensku Óperunni. Hann hefur gert leikmynd fyrir sýningar Leiklistarskóla Íslands og nokkrar leikmyndir erlendis.
Finnur var tilnefndur til Grímunnar-Íslensku leiklistarverðlaunanna fyrir leikmynd í Íslandsklukkunni og Kryddlegnum hjörtum.
Finnur Arnar hannar leikmynd fyrir Vesalingana hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Síðast breytt í ágúst 2011.