Elva Ósk Ólafsdóttir

Elva Ósk Ólafsdóttir lauk námi við Leiklistarskóla Íslands 1989. Hún hefur farið með fjölda burðarhlutverka við Þjóðleikhúsið, meðal annars í Gauragangi, Snædrottningunni, Oleönnu, Stakkaskiptum, Þreki og tárum, Don Juan, Sem yður þóknast, Grandavegi 7, Óskastjörnunni, Komdu nær, Brúðuheimilinu, Horfðu reiður um öxl, Vilja Emmu, Veislunni, Rauða spjaldinu, Jóni Gabríel Borkmann, Þetta er allt að koma, Edith Piaf, Öxinni og jörðinni, Dínamíti og Hjónabandsglæpum. Hún lék veigamikil hlutverk í Húsi Bernörðu Alba og Íslandsklukkunni hjá Leikfélagi Akureyrar og í Ég er meistarinn, Kjöti, Heima hjá ömmu og Englum í Ameríku hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Elva Ósk hefur leikið í nokkrum kvikmyndum, meðal annars í Stuttum frakka, Benjamín dúfu, Ikingut, Hafinu og Kaldri slóð. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í Hafinu. Hún lék einnig í framhaldsþáttunum Erninum hjá Danmarks Radio.

Elva Ósk hlaut Menningarverðlaun DV í leiklist fyrir túlkun sína á hlutverki Nóru í Brúðuheimili og var tilnefnd til Grímuverðlaunanna fyrir leik sinn í Veislunni og Hjónabandsglæpum. Elva Ósk Ólafsdóttir hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2007.

 





Letur breytingar


Leit