Björn Thors

 
Björn Thors lauk B.F.A. gráðu í leiklist frá Listaháskóla Íslands vorið 2003. Hann hefur leikið fjölda hlutverka hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Vesturporti og víðar, meðal annars víða um Evrópu.
 
Meðal verkefna Björns hér í Þjóðleikhúsinu eru Allir synir mínir, Íslandsklukkan, Gerpla, Brennuvargarnir, Græna landið, Ríkarður þriðji og Dínamít. Hann lék Killer Joe í uppsetningu Skámána í Borgarleikhúsinu, í Rústað og Vestrinu eina í Borgarleikhúsinu og í Hamskiptunum hjá Vesturporti. Hann lék í Klúbbnum hjá samnefndum leikhópi í Borgarleikhúsinu.
 
Björn vann talsvert með þýska listamanninum Christoph Schlingenschief sem lést fyrr á þessu ári. Á meðal leikhúsa í Evrópu sem Björn hefur leikið í eru Volksbuhne í Berlín, Þjóðleikhús Austurríkis - Burg leikhúsið í Vín og Lyric Hammersmith leikhúsið í London.
 
Björn lék nýlega í kvikmyndunum Þetta reddast, Djúpinu og Borgríki sem frumsýndar verða á næstunni, ásamt stuttmyndinni Come To Harm. Hann var framleiðandi, einn handritshöfunda og annar tveggja leikstjóra kvikmyndarinnar Reykjavík Guesthouse - rent a bike.
 
Björn hefur hlotið þrenn Grímuverðlaun, fyrir Græna Landið, Vestrið eina og Íslandsklukkuna og var tilnefndur fyrir Alla synir mína, Killer Joe og Dínamít. Hann fékk Edduverðlaunin fyrir leik sinn í sjónvarpsseríunni Fangavaktinni. 
 
Björn leikur nú í vetur í Heimsljósi og Afmælisveislunni hér í Þjóðleikhúsinu.
 
 
 
(Mars 2012).




Letur breytingar


Leit