Þórhallur Sigurðsson (Laddi)

 

Þórhallur Sigurðsson (Laddi) hefur komið víða við sem skemmtikraftur, leikari og tónlistarmaður.

 

Laddi spilaði og söng með ýmsum hljómsveitum, meðal annars Föxum, áður en hann hóf feril sinn sem leikari og skemmtikraftur í Ríkissjónvarpinu árið 1971.

 

Meðal leiksýninga sem hann hefur leikið í eru söngleikurinn Oliver árið 1989 í Þjóðleikhúsinu þar sem hann fór með hlutverk Fagins, Litla hryllingsbúðin, Íslenska revían, gamanleikritið Nördinn, Fífl í hófi og Hjónabandssæla í Gamla bíói og Grease, Kalli á þakinu, Salka Valka, Ronja Ræningjadóttir, Viltu finna milljón, Ó fagra veröld, Lík í óskilum og Galdrakarlinn í Oz í Borgarleikhúsinu. Hann lék ennfremur sýninguna Laddi 6-tugur í Borgarleikhúsinu.

 

Meðal sjónvarpleikrita og sjónvarpsþátta sem hann hefur leikið í eru Spaugstofan, Imbakassinn, Heilsubælið í Gervahverfi og flest áramótaskaup frá upphafi.

 

Hann hefur komið fram í skemmtisýningum í Þórscafé og á Hótel Sögu í fjölmörg ár.

 

Hann hefur einnig lesið inn á fjöldann allan af teiknimyndum og leikið í útvarpsleikritum.

 

Laddi hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum, meðal annars í Stellu í orlofi og Stellu í framboði, Löggulífi, Magnúsi, Karlakórnum Heklu, Íslenska draumnum, Regínu, Jóhannesi, Okkar eigin Osló og Roklandi.

 

Laddi fer í vetur með hlutverk Thénardiers í söngleiknum Vesalingunum hér í Þjóðleikhúsinu.

 

(Janúar, 2012).





Letur breytingar


Leit