Illugi Jökulsson

Illugi Jökulsson gerðist blaðamaður ungur að árum og hefur síðan starfað við fjölmiðla og eilítið komið nálægt skriftum af margvíslegu tagi. Hann var blaðamaður á ýmsum blöðum, og hefur verið ritstjóri jafnt blaða sem tímarita, allt frá DV til Skakka turnsins. Þá hefur hann starfað mikið fyrir útvarp og eitthvað komið nálægt sjónvarpi. Lengst sá hann um þáttaröðina Frjálsar hendur á Rás eitt Ríkisútvarpsins, en sá þáttur var á dagskrá á sunnudagskvöldum og var þar fjallað um margvísleg söguleg og menningarleg efni.

Þá hefur Illugi gefið út bækur um margvísleg efni, allt frá sögu popphljómsveitarinnar Stuðmanna til frásagnar um stjörnumerkin og heiti þeirra. Ennfremur hefur hann skrifað um sögu Íslands á 20. öld, skákmeistara, íslenska nasista og fleiri efni. Hann hefur gefið út tvær skáldsögur, fimm barnabækur og ljóðabók.

Illugi hefur þýtt fjölda leikrita, einkum fyrir Ríkisútvarpið, en í Þjóðleikhúsinu var flutt þýðing hans á leikritinu Poppkorn eftir Ben Elton. Þá hefur hann skrifað leikgerðir af ýmsu tagi, bæði fyrir útvarp og svið. Þjóðleikhúsið sýndi leikgerð hans eftir sögum Guðrúnar Helgadóttur, Sitji guðs englar, en Borgarleikhúsið leikgerð eftir Skógarlífi Rudyards Kiplings.

 

Illugi þýðir Dagleiðina löngu eftir Eugene O'Neill sem sýnd er í Kassanum í vetur.

 

(Febrúar, 2012).





Letur breytingar


Leit