Bjarni Snæbjörnsson

Bjarni Snæbjörnsson lauk leikaranámi með BFA gráðu frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands 2007. Bjarni hefur einnig söngnám að baki og kláraði 5. stig í söng frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2001 og lærði söng við Complete Vocal Institute.

Bjarni lék hlutverk Péturs í Jesus Christ Superstar hjá Borgarleikhúsinu veturinn 2007-2008. Hann hefur leikið hjá sjálfstæðum leikhópum, en meðal sýninga sem hann hefur tekið þátt í eru Ástverk ehf, Rándýr og Sarínó sirkusinn.

Hann hefur sungið og leikið við margvísleg tækifæri í gegnum árin. Hann hefur haldið eigin tónleika og staðið fyrir leiksýningum, skemmt á mannamótum og hrundið í framkvæmd ófáum menningarviðburðum.

Vorið 2011 lauk Bjarni diplómanámi til kennsluréttinda frá LHÍ og starfar að hluta til sem leiklistarkennari við nýstofnaða leiklistarbraut við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Þá hefur hann víðtæka kennslureynslu frá Leynileikhúsinu og ýmsum grunnskólum á landinu öllu. Bjarni hefur einnig leikstýrt söngleikjum í framhaldsskólum.
Í vetur leikur og syngur Bjarni í gestasýningunni Uppnámi sem sett er upp í Þjóðleikhúskjallaranum. Þar leikur hann Viggó í hinu konunglega söngleikjapari Viggó og Víólettu.
Bjarni leikur í Vesalingunum hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
 
 
(September 2011). 
 
 
 
 
 

 





Letur breytingar


Leit