Eyþór Ingi Gunnlaugsson

EYÞÓR INGI GUNNLAUGSSON er borinn og barnsfæddur Dalvíkingur, fæddur árið 1989. Strax í barnæsku tók hann þátt í leiklistarstarfi bæði í barnaskólanum og hjá Leikfélagi Dalvíkur. Eyþór Ingi tók þátt í Óliver Twist! hjá Leikfélagi Akureyrar árið 2004, í leikritinu Óvitar árið 2007, uppfærslu VMA á Jesus Christ Superstar auk þess að taka þátt í Margt smátt gerir eitt stórt leiklistarhátíðinni á vegum BÍL.

Árið 2007 sigraði Eyþór Ingi Söngkeppni framhaldsskólanna og árið eftir sigraði hann söngkeppnina Bandið hans Bubba en síðan þá hefur hann komið víða við sem söngvari og tónskáld.

Árið 2010 tók hann þátt í uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Rocky Horror í hlutverki Riff Raff og árið eftir lék hann Berger í uppfærslu Silfurtunglsins á Hárinu í Hofi og Hörpu.

Eyþór hefur komið fram með ýmsum hljómsveitum, meðal annars Deep Purple tribute band, proggsveitinni Eldberg sem gaf út sína fyrstu plötu núna í sumar og Todmobile. Eyþór Ingi vinnur að sinni fyrstu sólóplötu með eigin tónsmíðum.

Eyþór Ingi var tilnefndur til Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna fyrir söng sinn í Rocky Horror.

Hann fer með hlutverk Maríusar í uppfærslu Þjóðleikhússins á Vesalingunum í vetur.

 

(Texta síðast breytt í ágúst 2011).





Letur breytingar


Leit