Svandís Dóra Einarsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2010. Lokaverkefni hennar í Nemendaleikhúsinu voru Eftirlitsmaðurinn, Bráðum hata ég þig og Stræti.
Svandís Dóra hefur meðal annars leikið í sjónvarpsþáttunum Réttur 2 og Pressa 2 og kvikmyndunum Kurteist fólk, Borgríki sem verður frumsýnd haustið 2011 og Faust í leikstjórn rússneska leikstjórans Alexander Sukorov. Einnig hefur hún tekið þátt í ýmsum verkefnum á leiklistarhátíðinni Art Fart, leikið í uppsetningum leikhópsins Vér morðingjar á Bubba kóngi og Hart í bak og tekið þátt í útskriftarverkefnum frá Listaháskóla Íslands, ýmist á sviði leiklistar, tónlistar eða dans. Svandís Dóra hefur einnig kennt börnum leiklist hjá ÍTR og Leynileikhúsinu.
Svandís Dóra leikur í Heimsljósi hér í Þjóðleikhúsinu í vetur og býður leikhúsið hana velkomna til starfa.
Síðast uppfært í ágúst 2011.