Kjartan Sveinsson útskrifaðist árið 2007 frá tónlistardeild LHÍ með BA gráðu í tónsmíðum.
Hann hefur komið víða við sem tónskáld og flytjandi tónlistar. Hann hefur verið meðlimur hljómsveitarinnar Sigur Rósar frá árinu 1997. Hann hefur samið tónlist við ýmsar kvikmyndir, má þar nefna Eldfjall og Síðasta bæinn eftir Rúnar Rúnarsson og Plastic Bag eftir Ramin Bahrani.
Einnig hefur Kjartan unnið með ýmsum listamönnum, innlendum sem erlendum. Má þar nefna Ragnar Kjartansson, Anne Carson og Merce Cunningham
Kjartan semur tónlist fyrir sýningu Þjóðleikhússins á Heimsljósi nú í vetur.
Desember, 2011.