Atli Þór Albertsson útskrifaðist frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2005 og hefur leikið fjölda hlutverka á leiksviði, í sjónvarpi og útvarpi.
Hann lék meðal annars í söngleiknum Kabarett í Íslensku óperunni, Milljarðamærinni í Borgarleikhúsinu og Abbababb í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Hjá Leikfélagi Akureyrar hefur hann leikið í Fló á skinni, Þjónn í súpunni, Sögunni af dátanum í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Lilju, 39 Þrep, Þögla þjóninum og Rocky Horror.
Atli hefur starfað mikið í sjónvarpi og skapað fjölda persóna svo sem Alla Atlas, Adda Idol og Friskó Bóbó, auk þess að hafa verið einn af stjórnendum þáttarins Strákarnir á Stöð 2.
Atli hefur einnig leikið í fjölda útvarpsleikrita og hefur verið starfandi dagskrárgerðarmaður hjá Rás 2 frá árinu 2007.
Hann hefur kennt leiklist í framhaldsskólum og leikstýrt áhugaleiksýningum.
Atli Þór leikur í Bjart með köflum og Vesalingunum hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Síðast breytt í ágúst 2011.