Hörður Ágústsson hefur unnið við Þjóðleikhúsið sem ljósamaður síðastliðin fimmtán ár og tekið þátt í fjölmörgum uppfærslum á Stóra sviðinu, auk þess sem hann hefur unnið á Smíðaverkstæðinu og í Kassanum.
Hörður hannaði sína fyrstu lýsingu ásamt Ásmundi Karlssyni í sýningunni Ern eftir aldri sem var samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Svöluleikhússins árið 2004. Hörður sá um lýsingu í Mýrarljósi ásamt Birni Bergsteini Guðmundssyni og hannaði lýsingu fyrir Eldhús eftir máli, Sitji guðs englar, Konuna áður og Vígaguðinn.
Hann hannar lýsingu fyrir Dagleiðina löngu í Kassanum nú í vetur.
(Febrúar, 2012).