Ævar Þór Benediktsson útskrifaðist sem leikari úr leiklistardeild LHÍ vorið 2010.
Lokaverkefni hans í Nemendaleikhúsinu voru Eftirlitsmaðurinn, Bráðum hata ég þig og Stræti.
Hann lék í sjónvarpsþáttunum Dagvaktinni, Rétti, Hæ Gosa og Heimsendi auk þess að taka þátt í Grease í Loftkastalanum.
Ævar hefur búið til mikið af barnaefni bæði fyrir útvarp og sjónvarp. Eftir hann liggja tvö útvarpsleikrit, Náföl og Ímyndaðar afstæðiskenningar og tvær bækur, smásagnasafnið Stórkostlegt líf herra Rósar og fleiri sögur af ótrúlega venjulegu fólki og Glósubók Ævars vísindamanns. Þá er hann einn af stofnendum leikhópsins Homo Ludens.
Ævar var ásamt öðrum tilnefndur til Grímunnar 2011 fyrir barnasýninguna Hvað býr í Pípuhattinum?
Ævar leikur í Hvað ef? - skemmtifræðslu fyrir unglinga sem sýnd er í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á vegum leikhópsins 540 Gólf.
Á síðasta leikári lék Ævar í Ballinu á Bessastöðum, Leitinni að jólunum og Bjart með köflum.
Í vetur mun hann taka að sér hlutverk í Sögustundinni, Vesalingunum og Heimsljósi, auk þess að vera aðstoðarmaður leikstjóra í Heimsljósi.
Síðast uppfært í ágúst 2011.