Eiríkur G. Stephensen

Eiríkur G. Stephensen útskrifaðist úr Blásarakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík 1985 og Tónfræðadeild sama skóla 1992. Veturinn 1986 – 87 var hann gestanemandi við Hochschule fur Musik Hanns Eisler í Berlin.  Hann hefur fengist við kennslu og hljóðfæraleik og er meðal annars í hljómsveitinni Hundur í óskilum ásamt Hjörleifi Hjartarsyni. Hann tók þátt í uppfærslu hjá Leikfélagi Akureyrar á Rummungi ræningja 1998. Eiríkur starfar nú sem skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Ásamt Hjörleifi Hjartarsyni sér Eiríkur um tónlist í sýningu Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni.

Síðast uppfært 15.04.2010





Letur breytingar


Leit