Helga Björnsson hefur verið búsett í Bretlandi og Frakklandi frá þrettán ára aldri, en er nýlega sest aftur að hér á landi.
Hún lauk námi í fatahönnun frá Les Arts Decoratives í París og starfaði um árabil sem aðalhönnuður við Haute Couture í tískuhúsi Louis Feraud í París. Hún hefur einnig hannað fatnað og ýmsa fylgihluti fyrir íslensk fyrirtæki.
Hún hannaði leikbúninga hjá Þjóðleikhúsinu fyrir Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness í leikgerð Benedikts Erlingssonar, Silkitrommu Atla Heimis Sveinssonar, Hjálparkokka Furths, Aurasál Moliérs og Óreisteiu Aeskilosar. Einnig hannaði hún búninga fyrir Cavalleria og Pagliacci hjá Íslensku óperunni og fyrir edda.ris hjá leikhópnum Bandamenn.
Helga starfar nú sjálfstætt við hönnun fatnaðar og fylgihluta.
Helga hlaut Grímuna - Íslensku leiklistarverðlaunin fyrir búninga sína í Íslandsklukkunni.
Helga gerir búninga fyrir sýningu Þjóðleikhússins á Svörtum hundi prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur í vetur.
(Ágúst 2011).