Lára Sveinsdóttir

Lára Sveinsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001.

Hún hefur leikið í fjölda sýninga sjálfstæðra leikhópa eins og Ódauðlegu verkunum með Áhugaleikhúsi Atvinnumanna, Úlfhamssögu með Öðru sviði og Hamskiptunum og Með lykil um hálsinn með Vesturporti. Hún lék Mæju Jarðaber í  Ávaxtakörfunni með Ísmedíu, Dídí mannabarn í Benedikt Búálfi með Draumasmiðjunni og Mónu Lísu í Baulaðu nú með Lab Loka. Lára hefur starfað í Borgarleikhúsinu og leikið þar Maríu Magdalenu í Jesus Christ Superstar, Gullauga í Gretti og Lísu í Söngvaseiði. Einnig hefur Lára leikið í sjónvarpsþáttum eins og Stelpunum og Rétti.

Fyrsta hlutverk Láru í Þjóðleikhúsinu var Heiða í Sitji Guðs englum. Hún fer með titilhlutverkið í Fíusól, og á þessu leikári leikur hún í Finnska hestinum, Ballinu á Bessastöðum og Bjart með köflum. 

Síðast uppfært 5.10.2010





Letur breytingar


Leit