Lára Sveinsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001.
Fyrsta hlutverk Láru hér í Þjóðleikhúsinu var Heiða í Sitji guðs englar. Hún fór með titilhlutverkið í Fíusól og hefur leikið hér í Finnska hestinum, Ballinu á Bessastöðum og Bjart með köflum.
Lára hefur leikið í fjölda sýninga sjálfstæðra leikhópa eins og Ódauðlegu verkunum með Áhugaleikhúsi Atvinnumanna, Úlfhamssögu með Öðru sviði og Hamskiptunum og Með lykil um hálsinn með Vesturporti. Hún lék Mæju Jarðaber í Ávaxtakörfunni með Ísmedíu, Dídí mannabarn í Benedikt Búálfi með Draumasmiðjunni og Mónu Lísu í Baulaðu nú með Lab Loka.
Lára hefur starfað í Borgarleikhúsinu og leikið þar Maríu Magdalenu í Jesus Christ Superstar, Gullauga í Gretti og Lísu í Söngvaseiði.
Einnig hefur Lára leikið í sjónvarpsþáttum eins og Stelpunum og Rétti.
Lára flytur einleikinn Judy Garland ásamt Jasshljómsveit Úlfs Eldjárns í Leikhúskjallaranum í vetur, en hún er jafnframt höfundur og framleiðandi sýningarinnar.
Lára leikur í Heimsljósi og Leitinni að jólunum hér í vetur.
Nóvember 2011.