
Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, lauk prófi í fjölmiðlafræði og spænsku frá Utah háskóla, BNA, 1987 og starfaði sem
fréttamaður í útvarpi og sjónvarpi í rúman áratug. Hún hefur sent frá sér hátt í 20 barna- og fjölskyldubækur frá því sú fyrsta kom út 1997. Þeirra á meðal eru Binnubækurnar, Mói hrekkjusvín, Miljón steinar og Hrollur í dalnum, Í Mánaljósi, Strandanornir, Gallsteinar afa Gissa og Draugaslóð. Kristín Helga hefur fimm sinnum fengið Bókaverðlaun Barna, meðal annars fyrir sögurnar um Fíusól. Hún hlaut Vestnorrænu barnabókaverðlaunin 2008 og Sögustein IBBY 2009. Áður hefur Kristín Helga fengið barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar, tilnefningu til norrænu barnabókaverðlaunanna og fleiri viðurkenningar fyrir verk sín. Bækurnar um Fíusól eru orðnar fjórar; Fíasól í fínum málum, Fíasól í hosiló, Fíasól á flandri og Fíasól er flottust. Þá hefur einnig komið út Ferðabók Fíusólar. Sögurnar um Fíusól hafa slegið rækilega í gegn með ómótstæðilegum teikningum Halldórs Baldurssonar. Um leið og Fíasól býður leikhúsgestum heim í hosiló og inn í hræðilega ruslahauginn í Þjóðleikhúsinu kemur út enn ein bókin um stelpuna. Það er myndabók sem ber titilinn Fíasól og litla
ljónaránið.