Gísli Galdur Þorgeirsson

 

Gísli Galdur Þorgeirsson hefur starfað á mörgum sviðum tónlistar undanfarin ár, leikið með ýmsum hljómsveitum og unnið sem plötusnúður út um allan heim, sem hljóðmaður í Þjóðleikhúsinu og við gerð hljóðmynda fyrir leikverk, gjörninga og videóverk.

Hann hefur meðal annars unnið með hljómsveitunum Trabant, Quarashi, Ghostigital, Motion Boys og Human Woman.

Gísli Galdur hefur unnið sjálfstætt að ýmsum verkefnum og í samvinnu við aðra listamenn. Meðal annars hefur hann unnið með myndlistarkonunum Katrínu Ólínu og Ásdísi Sif við tónvinnslu við gjörninga og videóverk og með franska listamanninum Michel Moglia við flutning á verki hans á Vetrarhátíð 2007, Eldorgelið.

Gísli Galdur er meðlimur í leikhópnum Ég og vinir mínir sem setti upp sýninguna Húmanímal í Hafnarfjarðarleikhúsinu og Verði þér að góðu hér í Þjóðleikhúsinu.

Gísli Galdur sá um tónlist og hljóðmynd í sýningu Þjóðleikhússins á Gerplu og tónlist í Allir synir mínir.

Hann hlaut Grímuna-Íslensku leiklistarverðlaunin fyrir hljóðmynd í Húmanímal og var tilnefndur fyrir Gerplu og Verði þér að góðu fyrir tónlist og hljóðmynd ársins.

Gísli Galdur sér um tónlist og hljóðmynd í sýningu Þjóðleikhússins á Svartur hundur prestsins nú í vetur.

 

Síðast uppfært í ágúst 2011.





Letur breytingar


Leit