Sindri Birgisson

Sindri Birgisson nam leiklist við FILM/Teaterskolen Holberg í Dannmörku og útskrifaðist árið 2007. Hann starfaði hjá Leikfélagi Akureyrar á síðasta leikári þar sem hann fór með hlutverk Jóhannesar Kjarval í Músagildrunni og Óla og Grýlu í Lápur, Skrápur og jólaskapið. Hann var einnig aðstoðarleikstjóri í Falið Fylgi eftir Bjarna Jónsson og lék í spunaverkinu Þjónn í súpunni. Sindri leikur nú í fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu og býður leikhúsið hann velkominn til starfa. Hann mun leika í Brennuvörgunum og Gerplu í vetur.




Letur breytingar


Leit