Listráð og höfundastarf

Verkefnaval

Þjóðleikhússtjóri ber ábyrgð á verkefnavali Þjóðleikhússins, en honum til ráðgjafar og aðstoðar eru:

Leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins, Melkorka Tekla Ólafsdóttir
Listrænn stjórnandi Kúlunnar, Þórhallur Sigurðsson

Listráð Þjóðleikhússins 2011-2012
      Atli Rafn Sigurðarson leikari
      Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri
      Stefán Jónsson leikstjóri

 

Höfundastarf

Þjóðleikhúsið hefur margháttaða samvinnu við íslenska höfunda, enda er það ein af skyldum leikhússins að sinna íslenskri leikritun og leggja sitt af mörkum til að efla hana.
Aðdragandi þess að nýtt íslenskt verk er keypt til flutnings á einhverju sviða leikhússins getur verið með ólíku móti, t.d.:

Leikhúsið kaupir tilbúið verk af höfundi.
Leikhúsið fær höfund til samstarfs til að skrifa fyrir leikhúsið. (Höfundur vinnur í samvinnu við leikhúsið að þróun leikverks út frá hugmynd og handritsdrögum sem hann hefur lagt fram).

 
Sjá nánar í samningi Þjóðleikhússins og Rithöfundasambands Íslands.

Sjá nánar um Prologus-höfundarsjóð Þjóðleikhússins.

 

Skil á hugmyndum og handritum

Höfundar sem vilja skrifa fyrir Þjóðleikhúsið geta sent leikhúsinu hugmyndir, drög eða fullskrifuð handrit til lestrar. Samstarf leikhússins við höfund getur hafist með vel útfærðri hugmynd eða drögum að handriti.

Óskað er eftir að höfundur sendi inn:

  • Handrit leikverks eða eitt eða fleiri atriði úr verkinu (minnst 5 bls.).
  • Stutta lýsingu á verkinu, eða svokallað synopsis, (1-2 bls.), þar sem fram kemur persónufjöldi, atburðarás og annað sem höfundur óskar að koma á framfæri.
  • Ferilskrá þar sem fram kemur menntun, fyrri störf og reynsla af skrifum.
     

Handritum, hugmyndum eða drögum að handritum skal skila til Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóra, Þjóðleikhúsinu, Lindargötu 7, 101 Reykjavík, s. 585 1200, tinna@leikhusid.is.

 

 





Letur breytingar


Leit