Þjóðleikhúsið - á öllum sviðum lífsins!
Hlutverk Þjóðleikhússins er að:
-
Glæða áhuga landsmanna á leiklist og þeim listgreinum sem tengjast leiksviði með fjölbreyttu úrvali sýninga.
-
Örva innlenda leikritun og aðra höfundavinnu og stuðla að aukinni samvinnu sviðslistamanna.
-
Stuðla að framþróun í greininni með því að leggja áherslu á faglega úrvinnslu og listræna framsetningu.
-
Efla leiklistaruppeldi með framboði á sýningum sérstaklega ætluðum börnum og ungmennum.
-
Efna til umræðna og verkefna á sviði leiklistar í samvinnu við skóla, félagasamtök og stofnanir.
-
Miðla leiklist um landið með leikferðum og samvinnuverkefnum.
Þjóðleikhúsið var vígt árið 1950 og hefur því starfað í yfir hálfa öld. Um fjórar milljónir áhorfenda hafa sótt sýningar leikhússins frá upphafi. Starfsemi Þjóðleikhússins er fjármögnuð að þrem fjórðu hlutum með framlagi af fjárlögum, en einum fjórða með sjálfsaflafé.
Leikið er á þremur leiksviðum í Þjóðleikhúsinu, Stóra sviðinu sem tekur 454 gesti í sæti í áhorfendasal, en 499 gesti þegar sæti eru sett yfir hljómsveitargryfju. Kassinn við Lindargötu 7 tekur 134 gesti í sæti og Kúlan, barnasviðið í kjallara við Lindargötu 7, tekur 80 gesti í sæti, en allt að 120 gesti ef setið er á dýnum á gólfinu.
Þjóðleikhúsið hefur afnot af gamla Hæstaréttarhúsinu við Lindargötu. Þar er æfingaaðstaða og bóka- og skjalasafn leikhússins til húsa.
Þjóðleikhúsið leggur áherslu á að efla íslenska leikritun með flutningi nýrra innlendra verka og kynna áhorfendum jafnframt það sem forvitnilegast er að gerast í erlendri leikritun. Einnig eru flutt sígild verk, barnaleikrit, söngleikir og óperur.
Á hverju leikári starfa milli fjögur og fimm hundruð manns í Þjóðleikhúsinu. Í hverri leiksýningu er fólgin mikil vinna. Samhliða leikæfingum og vinnu listrænna stjórnenda hverrar sýningar vinnur starfsfólk ólíkra deilda Þjóðleikhússins vikum saman að undirbúningi. Má þar nefna sviðsmenn, starfsfólk saumastofu, leikmunadeildar, hárgreiðslu- og förðunardeilda, ljósadeildar, hljóðdeildar og kynningar- og fræðsludeilda.
Þjóðleikhúsið leggur metnað sinn í að bjóða áhorfendum leiklist í hæsta gæðaflokki.
Þjóðleikhússtjórar frá upphafi:
1949-1972 Guðlaugur Rósinkrans
1972-1983 Sveinn Einarsson
1983-1991 Gísli Alfreðsson
1991-2005 Stefán Baldursson
2005- Tinna Gunnlaugsdóttir
Þjóðleikhúsið
Hverfisgötu 19
Miðasala: 551 1200
Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is
Skrifstofur:
Lindargötu 7
101 Reykjavík
Skiptiborð: 585 1200
Netfang: leikhusid@leikhusid.is
Veffang Þjóðleikhússins: www.leikhusid.is