Mið-Ísland á Stóra sviðinu

eftir Grínhópinn Mið-Ísland

Mið-Ísland á Stóra sviðinu
Er ekki kominn tími til að hlæja ærlega undir stuðlabergshvelfingunni í stóra sal Þjóðleikhússins? Í febrúar fylltu uppistandararnir í Mið-Ísland hópnum stóra salinn fimm sýningar í röð. Nú býðst hópnum að stíga aftur á sviðið aðeins þetta eina kvöld í apríl og því ætti fólk að tryggja sér miða í tíma.

Í boði verður rúmlega tveggja klukkustunda skotheld hláturtaugadagskrá með meðlimum hópsins þeim Ara Eldjárn, Bergi Ebba, Jóhanni Alfreð og Dóra DNA ásamt Birni Braga og góðum gestum. Mið-Ísland er á mikilli siglingu þessa dagana enda sýnir Stöð 2 nú um þessar mundir samnefnda sjónvarpsseríu sem leikin er og skrifuð af meðlimum hópsins. Það verður því blússandi lens í stóra sal Þjóðleikhússins og ekki verra ef þar biði þín sæti á þessa skemmtilegu sýningu.

Meðal fyrri gesta á uppistandskvöldum Mið-Íslands eru Anna Svava Knútsdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon, Þorsteinn Guðmundsson, Þórhallur Þórhallsson, Saga Garðarsdóttir, Hugleikur Dagsson, Sólmundur Hólm, norski uppistandarinn Dag Sørås og Finninn André Wickström.

Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!

 



Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 2500 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
02.03.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit