Leikhús listamanna

eftir leikhópinn

Leikhús listamanna

Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ingibjörg Magnadóttir, Ragnar Ísleifur Bragason, Ragnar Kjartansson, Snorri Ásmundsson, Saga Sigurðardóttir, Margrét Bjarnadóttir og fleiri óvæntir gestir munu setja upp nýleg verk á sviði Þjóðleikhúskjallarans í febrúar, mars og arpríl næstkomandi.

 

Uppsetningin verður nokkurs konar blanda af  “Soirée” eins og það var kallað í París á sínum tíma, og "Leikhúsi Listamanna". Kvöldstund þar sem listamenn deila nýlegum verkum  með sjálfum sér og áhorfendum.

 

“Leikhús Listamanna” var upphaflega stofnað í Klink og Bank árið 2004. Þar komu saman listamenn úr öllum áttum og sviðsettu listaverk sín. Verkin voru sjaldan æfð fyrirfram, og léku listamennirnir í verkum hver annars.

 

“Soirée” kvöld hafa verið haldin nokkrum sinnum í heimahúsum listamannanna síðastliðið ár í Reykjavík en þau ganga út á það að fólk hittist í húsi og stígur á stokk. Í raun og veru gildir það einu hvað fólk gerir.

 

Aldrei er hægt að vita við hverju er að búast á kvöldum sem þessum.

Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 1200 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
08.02.2011 
Svið:
Gestasýningar 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit