Nýstárleg og fjörug sýning þar sem dregnar eru fram kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna, einelti, sjálfsmynd og annað það sem brennur á unglingum á aldrinum 14-16 ára. Þrír leikarar bregða sér í fjöldamörg hlutverk og nýta sér galdra leikhússins til að fræða unglinga og skemmta þeim, vekja þá til umhugsunar, og minna á hvernig skyndiákvarðanir sem virðast kannski hættulitlar í fyrstu geta stundum haft alvarlegar afleiðingar. Sýningin hlaut afar góðar viðtökur nemenda og foreldra þegar hún var sýnd fyrir 13.000 áhorfendur á árunum 2005-2007.
Nánari upplýsingar á hvadef.com
Leikstjórn: Gunnar Sigurðsson. Tónlistarstjórn og handritsumsjón: Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Leikarar: Ævar Þór Benediktsson, Ólöf Jara Skagfjörð og Guðmundur Ingi Þorvaldsson.
Sýningar fyrir skólahópa í Kassanum.
Gestaleikur frá 540 Gólf leikhúsi.
Um listræna aðstandendur sýningarinnar:
Gunnar Sigurðsson nam leikstjón/leiklist við Bristol Old Vic Theatre School og Emmerson College. Hann hefur leikstýrt bæði atvinnu-og áhugaleikhópum um land allt, verið framleiðandi af fjölda sýninga og gert heimildarmynd í fullri lengd. Hann vinnur nú að gerð tveggja heimildarmynda í fullri lengd.

Guðmundur Ingi Þorvaldsson útskrifaðist frá Goldsmiths University of London 2009 með Master í gjörningalist og leikstjórn. Ytra lék hann m.a í sjónvarpsþáttunum Any Human Heart og í myndbandi með Iron Maiden og auk þess í nokkrum sviðsverkum í Shunt leikhúsinu. Hann útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands árið 1998. Hann á að baki hlutverk í um fjörutíu uppfærslum á sviði í atvinnuleikhúsum á Íslandi, um tuttugu í sjónvarps, bíó- og stuttmyndum, fimmtán leikstjórnarverkefni í atvinnuleikhúsi, fimm hljómplötur með eigin efni auk kennslu, talsetninga ofl. Sjá nánar: gudmundurthorvaldsson.blogspot.com
Ólöf Jara Skagfjörð lék í ýmsum söngleikjum við Verzlunarskóla Íslands, og tók þátt í barnasöngleikjunum Gosa í Borgarleikhúsinu og Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu. Hún fór með hlutverk Sandy í söngleiknum Grease í Loftkastalanum og hlutverk Betu í söngleiknum Oliver! í Þjóðleikhúsinu. Ólöf Jara leikur nú í söngleiknum Buddy Holly í Austurbæ.
Ævar Þór Benediktsson útskrifaðist sem leikari úr leiklistardeild LHÍ vorið 2010. Hann lék í sjónvarpsþáttunum Dagvaktinni og Rétti, auk þess að taka þátt í Grease í Loftkastalanum. Ævar hefur búið til efni bæði fyrir útvarp og sjónvarp, auk þess að vera höfundur smásagnasafnsins Stórkostlegt líf herra Rósar og fleiri sögur af ótrúlega venjulegu fólki og útvarpsleikritsins Náföl. Þá er hann einn af stofnendum leikhópsins Homo Ludens. Ævar mun í vetur leika í Ballinu á Bessastöðum, Leitinni að jólunum og söngleiknum Bjart með köflum í Þjóðleikhúsinu.