Sýningin VERÐI ÞÉR AÐ GÓÐU fagnar manneskjunni sem marglaga félagsveru. Ég og vinir mínir bjóða til samkvæmis þar sem þessi tegund, félagsveran, er krufin; hvernig hún kemur fyrir og hvernig hún afhjúpar sig þegar hún er viðkvæm, augljós, einmana, hungruð. Félagsveran ver sig, dansar, hreykir sér, lætur tilleiðast og þráir gefandi samskipti. Hvaða væntingar ber hún til samkvæmisins? Ég og vinir mínir hafa ákveðið að koma saman í Kassanum og afhjúpa sig og væntingar sínar í sýningu sem berst við að koma vel fyrir: Verði þér að góðu.
Leikstjórn: Friðrik Friðriksson.
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson.
Leikmynd og búningar: Rósa Hrund Kristjánsdóttir.
Leikarar og dansarar: Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Friðgeir Einarsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Saga Sigurðardóttir.
Frumsýning í Kassanum í byrjun maí.
Verði þér að góðu er samstarfsverkefni leikhópsins Ég og vinir mínir og Þjóðleikhússins. Sýningin hlaut styrk frá Leiklistarráði og Prologos.
Leikstjórn
Friðrik Friðriksson
Tónlist
Gísli Galdur Þorgeirsson
Leikmynd og búningar
Rósa Hrund Kristjánsdóttir
Leikarar og dansarar
Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Dóra Jóhannsdóttir
Friðgeir Einarsson
Jörundur Ragnarsson
Margrét Bjarnadóttir
Saga Sigurðardóttir