Ballið á Bessastöðum

eftir Gerði Kristnýju

Nýtt og sprellfjörugt barnaleikrit um forseta, prinsessu, draug og landnámshænu. Byggt á geysivinsælum bókum Gerðar Kristnýjar.

Um sýninguna

Frumsýning:
03.02.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
2 klst. 

Bjart með köflum

eftir Ólaf Hauk Símonarson

Nýr gleðigjafi frá Ólafi Hauki! Kraftmikið og skemmtilegt verk með tónlist frá ofanverðum sjöunda áratugnum.

Um sýninguna

Frumsýning:
08.04.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
2 klst. 30 mín. 

Allir synir mínir

eftir Arthur Miller

Mögnuð nútímaklassík um ábyrgð, græðgi, sekt og sakleysi. Sýningin var tilnefnd til sex Grímuverðlauna.

Um sýninguna

Frumsýning:
04.03.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
2 klst. 45 mín. 

Lér konungur

eftir William Shakespeare

Eitt merkasta verk leiklistarsögunnar, sem talar til okkar með ógnvænlegum krafti nú - í uppsetningu hins heimsþekkta leikstjóra Benedicts Andrews.

Um sýninguna

Frumsýning:
26.12.2010 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
 

Verði þér að góðu

eftir Ég og vinir mínir

Sýningin VERÐI ÞÉR AÐ GÓÐU fagnar manneskjunni sem marglaga félagsveru. 

Um sýninguna

Frumsýning:
07.05.2011 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 

Big Wheel Café

eftir Kristján Ingimarsson í samvinnu við leikhópinn

Staðurinn sem þú kemur á til að deyja Sýning Kristjáns Ingimarssonar og Neander leikhús hans frá Kaupmannahöfn Velkomin á Big Wheel Café - staðinn þar sem við hittumst, skiljum og hittumst á ný. Lífið hefst á þeirri mínútu sem þú gengur inn um dyrnar, þegar þú ferð... ertu dauður.

Um sýninguna

Frumsýning:
26.05.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
 

Hedda Gabler

eftir Henrik Ibsen

Ein mest ögrandi og umdeildasta kvenpersóna leikbókmenntanna. Hvenær verður krafa nútímamannsins um öryggi að rammgerðu fangelsi?

Um sýninguna

Frumsýning:
10.03.2011 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
2 klst. 15 mín. 

Góði dátinn Svejk

eftir Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins

Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2010 til 2011 að mati dómnefndar er að þessu sinni GÓÐI DÁTINN SVEJK, leikgerð Colin Teevan eftir sögu Jaroslav Hasek, í uppsetningu Freyvangsleikhússins. Leikstjóri er Þór Tulinius.

Um sýninguna

Frumsýning:
29.05.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
 

HAZE

eftir BEIJING DANCE THEATER

Framsækið dansleikhús frá Kína færir okkur magnþrungna sýningu sem er þeirra andsvar við umhverfis- og efnahagskreppu heimsins.

Um sýninguna

Frumsýning:
02.06.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
 

Við sáum skrímsli

eftir Ernu Ómarsdóttur og leikhópinn

Ljóðrænt verk undir listrænni stjórn Ernu Ómarsdóttur, þar sem hryllingur eins og hann birtist í trúarbrögðum, þjóðsögum, kvikmyndum og í raunveruleikanum er skoðaður í gegnum dans, söng, tónlist og myndlist. 

Um sýninguna

Frumsýning:
20.05.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
 

Brák

eftir Brynhildi Guðjónsdóttur

Þjóðleikhúsið sýnir nú nokkrar sýningar á Brák - einleik í fullri lengd eftir Brynhildi Guðjónsdóttur í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar. 

Um sýninguna

Frumsýning:
06.02.2011 
Svið:
Kúlan 
Lengd:
2 klst. 15 mín. 

Sindri silfurfiskur

eftir Áslaugu Jónsdóttur

Töfrandi falleg og litrík sýning fyrir yngstu börnin sem heillaði áhorfendur í Kúlunni á síðasta leikári. Missið ekki af þessari hrífandi perlu, um lítinn fisk í ægifögrum undirdjúpum hafsins.

Um sýninguna

Frumsýning:
31.10.2009 
Svið:
Kúlan 
Lengd:
0 klst. 50 mín. 

Íslandsklukkan

eftir Halldór Laxness

Geysivinsæl afmælissýning Þjóðleikhússins, sem hlaut fern Grímuverðlaun. Magnað verk í hrífandi uppfærslu.

Um sýninguna

Frumsýning:
22.04.2010 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
3 klst. 

Mið-Ísland á Stóra sviðinu

eftir Grínhópinn Mið-Ísland

Til að gleðja landsmenn í skammdeginu og slyddunni snýr Mið-Ísland hópurinn aftur í Þjóðleikhúsið.

Um sýninguna

Frumsýning:
02.03.2011 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
 

Subtales - Söngur millistéttarinnar

eftir Subfrau

SUBFRAU var stofnuð af níu leikkonum og bekkjarsystrum sem útskrifuðust frá finnska leiklistarháskólanum 2001. Subfrau er leiksvæði þeirra og vinnustofa, þeirra eigið rými þar sem þær hafa kannað nýjar birtingamyndir fyrir konur á leiksviði.

Um sýninguna

Frumsýning:
24.05.2011 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 

Leikhús listamanna

eftir leikhópinn

Kvöldstund þar sem listamenn deila nýlegum verkum með sjálfum sér og áhorfendum.

Um sýninguna

Frumsýning:
08.02.2011 
Svið:
Gestasýningar 
Lengd:
 

Gerpla

eftir Halldór Laxness

Hugmyndarík og skemmtileg sviðsetning á Gerplu, sem notið hefur mikilla vinsælda. Veisla fyrir augu og eyru, þar sem töframáttur leikhússins kemur sífellt á óvart.

Um sýninguna

Frumsýning:
12.02.2010 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
2 klst. 30 mín. 

Hænuungarnir

eftir Braga Ólafsson

Bráðfyndið og ísmeygilegt nýtt íslenskt verk sem sló í gegn á síðasta leikári. Kristbjörg Kjeld hlaut Grímuverðlaunin fyrir frábæran leik sinn í sýningunni.

Um sýninguna

Frumsýning:
27.02.2010 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
2 klst. 

Fíasól

eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur

Feykivinsæl sýning fyrir alla fjölskylduna um gleðisprengjuna Fíusól. 50 sýningar fyrir fullu húsi á síðasta leikári.

Um sýninguna

Frumsýning:
13.03.2010 
Svið:
Kúlan 
Lengd:
1 klst. 

Sögustund í Kúlunni

eftir Friðrik Friðriksson og leikhópinn

Sögustund í Kúlunni - Karlsson, Lítill, Trítill og Fuglarnir. Leikskólabörnum boðið í heimsókn, til að fræðast á skemmtilegan hátt um leikhúsið og kynnast töfraheimi þess.

Um sýninguna

Frumsýning:
16.09.2010 
Svið:
Kúlan 
Lengd:
0 klst. 40 mín. 

Kandíland

eftir Íslensku Hreyfiþróunarsamsteypuna

Nýtt íslenskt dansverk með söngívafi, unnið upp úr konungaverkum Shakespeares. Valdið skiptir um hendur og fætur í þessari framsæknu og fersku sýningu.

Um sýninguna

Frumsýning:
30.12.2010 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 

Hamskiptin

eftir Franz Kafka

Rómuð sýning Vesturports snýr aftur í Þjóðleikhúsið eftir frábærar viðtökur á leikferð víða um heim. Aðeins örfáar sýningar frá 27. ágúst.

Um sýninguna

Frumsýning:
27.08.2010 
Svið:
Stóra sviðið 
Lengd:
1 klst. 25 mín. 

Hvað EF - skemmtifræðsla

eftir Guðmund Inga Þorvaldsson, Gunnar Sigurðsson og fleiri

Nýstárleg og fjörug sýning þar sem dregnar eru fram kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna og annað sem brennur á unglingum á aldrinum 14-16 ára. Sýningar fyrir skólahópa í Kassanum.

Um sýninguna

Frumsýning:
26.10.2010 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 

Undantekningin

eftir leikhópinn Nya Rampen

Gestasýning frá Nya Rampen, sýnd á leiklistarhátíðinni Lókal. Kabarettsýning, byggð á kennsluleikriti eftir Bertolt Brecht sem nefnist Undantekningin og reglan.

Um sýninguna

Frumsýning:
01.09.2010 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 

Nígeríusvindlið

eftir Leikhópinn 16 elskendur

Leikhópurinn 16 elskendur kynnir: "16 lovers is a group of ten honest and trustworthy artists, all children of the late lieutenant colonel Addourhoman from Abuja who was killed by poisoning."

Um sýninguna

Frumsýning:
20.08.2010 
Svið:
Kassinn 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit