Einn alvinsælasti útvarpsþáttur þjóðarinnar undanfarin ár, Orð skulu standa, snýr nú heldur betur aftur í Þjóðleikhúskjallaranum.
Hann er grunnur þessarar stórskemmtilegu sýningar, en við bætist það sem gott leikhús hefur upp á að bjóða: Lifandi tónlist, leikþættir, upplestur, söngur og mikil kátína gesta, sem taka þátt í sýningunni – en bara ef þeir vilja.
Stjórnandi „þáttarins“ er sem fyrr Karl Th. Birgisson og með honum eru liðsstjórarnir Sólveig Arnarsdóttir og Guðmundur Steingrímsson.
Á sviðinu bætist í hópinn hinn sprelllifandi tónlistarstjóri Pálmi Sigurhjartarson, en vel valdir gestir eru – eins og áður – flest launfyndnasta fólk landsins, sem hefur lesið að lágmarki tvær Tinnabækur.
Fylgist með hér.
Ummæli gesta:
„Ógisslega gaman.“ Magga Rún
„Þetta er fáránlega skemmtilegt" Katrín Bessadóttir
„Þetta er mikil snilldarformúla, þessi þáttur.“ Guðmundur Andri Thorsson
„Mæli með að allir aðdáendur þátttanna drífi sig í leikhúsið.“ Vigfús M. Vigfússon
„Ótrúlega skemmtilegt.“ Svanhildur Hólm Valsdóttir
„Þvílík murrandi notalegheit!“ Ólöf Ýrr Atladóttir
„Frábær sýning og aðstandendum hennar til mikils sóma.“ Heimir Már Pétursson
„Ljúffeng skemmtun og gefandi, fyndin og hlýleg.“ Svandís Nína Jónsdóttir
„Mæli eindregið með þessari stórskemmtilegu sýningu!“ Markús Már Efraím
„Þetta er aldeilis frábær skemmtun í alla staði.“ Björn Valur Gíslason
„Kvöldið í kjallaranum var langt frá því að vera leiðinlegt.“ Sólveig Ólafsdóttir
„Enginn ætti að láta þetta skemmtilega fimmtudagskvöld fram hjá sér fara.“ Stefán Karl Stefánsson
„Aldeilis frábær skemmtun.“ Gunnar Hrafn Jónsson
„Þetta var yndislegt kvöld og ég held að ég hafi hlegið nær stanslaust.“ Guðbjörg Guðmundsdóttir
„Mikið óskaplega held ég að fólk þurfi að leita lengi að prógrammi hér á landi sem mér þætti skemmtilegra en það sem ég upplifði í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Takk fyrir mig.“ Ævar Örn Jósepsson
„Skemmti mér sennilega betur en allir í salnum til samans. Takk fyrir mig.“ Karl Sigurðsson baggalútur
„Skemmti mér konunglega á „Orð skulu standa“ sem Karl Th. Birgisson flutti í Þjóðleikhúskjallarann þegar RÚV hafði ekki lengur efni á þessum frábæra þætti. Mæli með sýningunni við alla áhugamenn um íslensku, bókmenntir og húmor.“ Bogi Ágústsson
„Allt að því súrrealísk hugmynd að setja á svið vinsælan en tiltölulega sérvitringslegan útvarpsþátt gengur upp. Frábær skemmtun.“ Ólafur Ísleifsson