Glerdýrin

eftir Tennessee Williams

Glerdýrin

Glerdýrin

eftir Tennessee Williams

í uppsetningu Fátæka leikhússins


 

Glerdýrin (The Glass Menagerie) eftir Tennessee Williams var frumflutt árið 1944 í Chicago og kom honum á kortið sem einum fremsta höfundi leikbókmenntanna.

 

„Tíminn er alltaf mesta fjarlægð milli tveggja staða.“

-Tom Wingfield.

 

Leikritið gerist í St. Louis á millistríðsárunum og fjallar um Wingfield fjölskylduna sem var yfirgefin af fjölskylduföðurnum fyrir margt löngu. Eftir stendur móðirin, Amanda, og elur upp börnin sín Tom og Láru. Þegar hér er komið við sögu er kreppan mikla í algleymingi og börnin orðin fullorðin. Amanda er atvinnulaus, Lára er í einkaritaraskóla og Tom vinnur á lager, starf sem hann er löngu búinn að fá nóg af. Samkomlagið milli Tom og móður hans er mjög stirt og oft ríkir allt að því stríðsástand á heimilinu þegar þau takast á. Lára lendir á milli þeirra og dregur sig meira og meira inn í skel sína. Þegar upp kemst að hin félagsfælna Lára er fallin út úr rándýru náminu, eftir að hafa skrópað í margar vikur, sér Amanda aðeins eina lausn. Það verður að finna eiginmann handa Láru og varpar hún þeirri byrði á herðar Toms, sem er allt annað en viljugur til verksins.

 

Verkið hefur tvisvar sinnum verið sett upp af íslenskum atvinnuleikhúsum, af Leikfélagi Reykjavíkur árið 1958 og Leikfélagi Akureyrar árið 1976, auk þess sem Útvarpsleikhúsið flutti það árið 2000.

 

Glerdýrin er 8. uppsetning Fátæka leikhússins. Meðal verka leikfélagsins eru Heteróhetjur, Rándýr, Tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar og Pizzasendillinn.

 

Höfundur

Tennessee Williams

 

Leikstjórn

Heiðar Sumarliðason

 

Þýðing

Heiðar Sumarliðason, ásamt leikhópnum

 

Leikarar

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Bjartmar Þórðarson, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson

 


Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 2000 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
20.03.2012 
Svið:
Gestasýningar 
Lengd:
2 klst. 



Letur breytingar


Leit