Pétur Gautur

eftir Henrik Ibsen

Pétur Gautur

Gestasýning frá Sviss, verðlaunasýning ungs íslensks leikstjóra á hinu klassíska verki Ibsens.

Verðlaunasýning frá LUZERNER THEATER, Sviss

 

Pétur Gautur

í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar

Sýning á Listahátíð í Reykjavík

Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið

miðvikudaginn 30. maí kl. 19.30

Verð: 3.500

Aðeins þessi eina sýning!

 

„Kraftmikil uppsetning sem skilur eftir sig stórar spurningar um lífið og tilveruna“ Nachkritik

 

Pétur Gautur er mögnuð sýning ungs íslensks leikstjóra, sem hlotið hefur mikla athygli í Evrópu. Sýningin var frumsýnd í Luzern í Sviss haustið 2010 og fékk strax frábærar viðtökur. Uppsetningin var í lok leikársins valin besta þýskumælandi sýning ársins á Nachtkritik.de af gagnrýnendum og áhorfendum. Pétur Gautur er íslenskum áhorfendum að góðu kunnur. Þetta mikla verk um leitina að sjálfum sér í barningi lífsins, um lífslygina og þrjóskuna í blekkingunni á mikið erindi við Ísland um þessar mundir.

 

Þorleifur Örn lauk leiklistarnámi frá LHÍ og leikstjórnarnámi frá Ernst Busch leiklistarskólanum í Berlín árið 2005 og hefur síðan þá vakið athygli sem leikstjóri í hinum þýskumælandi heimi, á Íslandi og víðar.  Leikhópurinn er svissneskur  en þrír íslenskir listamenn unnu að sýningunni með Þorleifi í Sviss, þau Vytautas Narbutas leikmyndahöfundur, Filippía I. Elísdóttir búningahöfundur og Símon Birgisson sem sá um vídeó og hljóð.

 

Sýningin er leikin á þýsku með íslenskum texta.

Gestasýningin Pétur Gautur er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Þjóðleikhússins.

 

Meðal ummæla Nachkritik.de um sýninuna eru:

 

„Þorleifur Arnarsson og dramatúrginum Ulf Frötzschner hafa í áhrifamikilli leikgerð komið hinum ógnarstóra heimi Ibsens fyrir innan draumaheims Pétur Gauts sjálfs. Heimur verksins er lifandi og sterk leikmynd Vytautas Narbutas gerir það að verkum að þar geta margir heimar mæst. Kvöldið er hlaðið næmri orku, drífandi krafti og sérstöku ... andrúmslofti,"

 

 „...þó svo að leikstjórinn setji upp sýninguna með hrun eigin lands í baksýn þá er hér á ferð miklu mun flóknari saga en það - þessi saga byrjar á endanum...“

 

„Ævintýri hins unga Gauts leikstýrir Þorleifur Arnarsson með samblandi af tragík og glettni, leikum með orð og sögulega nálgun. Sýningin stillir hlið við hlið öflugum og hjartnæmum senum...hún er intensív og beinskeytt ... að horfa á þessa sýningu er mikil hátíð.  Leikhópurinn í heild sinni skilar af sér hágæðaleikhúsi.  Þessi kraftmikla uppsetning skilur eftir sig stórar spurningar um sjálfið og tilveruna.“

 

„Á þessu kvöldi eru lygarnar sannar“.

Leikstjórn: Þorleifur Örn Arnarsson
Leikmynd: Vytautas Narbutas
Búningar: Filippía I. Elísdóttir
Vídeó og hljóð: Símon Birgisson
Dramatúrg: Ulf Frötzschner
Leikarar: Wiebke Kayser, Julia Reznik, Bettina
Riebesel, Jörg Dathe, Hans-Caspar Gattiker, Hajo
Tuschy, Jürg Wisbach, Samuel Zumbühl.

 

Um listamennina

Þorleifur Örn Arnarsson lauk leiklistarnámi frá LHÍ og leikstjórnarnámi frá Ernst Busch leiklistarskólanum í Berlín árið 2005, og hefur síðan þá vakið verðskuldaða athygli sem leikstjóri í hinum þýskumælandi heimi, á Íslandi og víðar.

 

Vytautas Narbutas hefur gert fjölda leikmynda og búninga í heimalandi sínu Litháen, Sviss, Finnlandi, Danmörku og hér á Íslandi í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku óperunni, Nemendaleikhúsi Listaháskóla Íslands og fyrir kvikmyndir. Vytautas starfar einnig sjálfstætt sem myndlistarmaður og hefur haldið myndlistarsýningar í Litháen, Finnlandi, Japan og á Íslandi.

 

Filippía I. Elísdóttir hefur á síðustu fimmtán árum komið að yfir eitt hundrað sýningum sem búninga- og sviðsmyndahönnuður, listrænn ráðgjafi og höfundur gjörninga. Sem búningahönnuður hefur hún starfað fyrir leikhús, óperur og kvikmyndir, jafnt á Íslandi sem erlendis og hlotið ýmis konar viðurkenningu og verðlaun fyrir störf sín. Hún hefur gert búninga fyrir fjölda leiksýninga hjá Þjóðleikhúsinu, LR, LA, Nemendaleikhúsinu, Íslensku óperunni og á Norðurlöndunum og í Sviss.

 

Tenglar

Leikhúsið í Luzern http://www.luzerner-theater.ch/

Nachtkritik.de www.nachtkritik.de/

 

 

 

 

Hér koma sýningardagarnir...

An Award Winning Production from the Luzern Theatre in Switzerland

 

Peer Gynt

Directed by Icelander Þorleifur Örn Arnarsson

 

Reykjavík Arts Festival

 

 

National Theatre, Main Stage

Wednesday May 30th 7.30 pm

Price: 3.500

One performance only

 

 

„A powerful production that leaves you with big questions about life and existence“ Nachkritik

 

 

Peer Gynt is a powerful production by a young Icelandic director that has gathered a lot of attention in Europe. It was premiered in Luzern, Switzerland, in the fall of 2010 and immediately received outstanding praise. At the end of the theatre season critics and audiences awarded it as the best German speaking show of the year on Nachtkritik.de. The story of Peer Gynt should sound familiar to Icelandic audience. This grand story, about the search for one self through the struggles of life, self-illusion and the stubbornness of deceit has a strong resonance in recent times. Director Þorleifur Örn Arnarsson has become a noticeable director in the German-speaking world following the success of Peer Gynt. The group of actors are Swiss but three Icelandic artists worked alongside Þorleifur on the show; set designer Vytautas Narbutas, Filippía I. Einarsdóttir costume designer and Símon Birgisson who is in charge of videos and sound.

 

Director: Þorleifur Örn Arnarsson
Set design: Vytautas Narbutas
Costumes: Filippía I. Elísdóttir
Video and sound: Símon Birgisson
Dramaturge: Ulf Frötzschner
Performers: Wiebke Kayser, Julia Reznik, Bettina
Riebesel, Jörg Dathe, Hans-Caspar Gattiker, Hajo
Tuschy, Jürg Wisbach, Samuel Zumbühl.

 

 

The play is performed in German with Icelandic subtitles.

The guest performance of Peer Gynt is a collaboration between the Reykjavík Arts Festival and the National Theatre of Iceland.

 

 

 

 

 

 

About the artists

Þorleifur Örn Arnarson finished drama studies from the Art Academy of Iceland and has a degree in directing from the Ernst Busch Theatre School in Berlin, following which he has rightfully made a name for himself as a director in the German-speaking world, Iceland and elsewhere.

Vytautas Narbutas has made countless set designs and costumes in his native country Lithunia, Switzerland, Finland, Denmark, and for various theatres in shows in Iceland. Vytautas also works as an artist, and has put on art exhibitions in Lithuania, Finland, Japan and Iceland.

 

Filippía I. Elísdóttir has in the last fifteen years been involved in over a hundred shows as a costume- and set designer, artistic director and performance art creator. As a costume designer she has worked for theatres, operas, and films in Iceland as well as abroad, and received many awards for her work.

 

Links:

Luzern Theatre http://www.luzerner-theater.ch/

Nachtkritik.de www.nachtkritik.de/

 

 

Verð

Fullorðnir: 3500 kr.

Kaupa miða

Næstu sýningar

  • 30
    maí.
    19:30

Um sýninguna

Frumsýning:
30.05.2012 
Svið:
Gestasýningar 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit