Kjartan eða Bolli?

eftir Hallveigu Thorlacius, leikgerð byggð á Laxdælu

Kjartan eða Bolli?

 

Leikgerð eftir Hallveigu Thorlacius, byggð á Laxdælu. 

Óvenjuleg og falleg leikhúsupplifun með óvæntum myndrænum útfærslum á hinum fræga ástarþríhyrningi þar sem sagan er sögð frá sjónarhóli Guðrúnar Ósvífursdóttur
Í Íslendingasögunum er tilfinningum persóna yfirleitt ekki lýst berum orðum og lesandinn þarf að lesa á milli línanna. Hér er ljósi beint að þessum sterku tilfinningum sem krauma undir niðri. Stuðst er við ákveðna tegund f myndrænu leikhúsi þar sem unnið er með brúður, frásagnarlist, tónlist, skuggaleikhús og hreyfimyndir sem varpað er á leikmyndina. Rekaviðurinn sem notaður var til að smíða brúðurnar minnir á hvernig við bárumst hingað til lands upphaflega og hvernig sögurnar um fyrstu Íslendingana hafa verið að velkjast um í tímans hafi.
Sýningin Kjartan eða Bolli? er hluti af Laxdæluþrennu, en einnig er unnið að leiksýningum byggðum á Laxdælu í Noregi og Finnlandi. Til stendur að halda Laxdæluleiklistarhátíð með þessum þremur ýningum í hverju landi.

Nánari upplýsingar á : www.tiufingur.is

Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson rúður og leikmynd: Helga Arnalds
Tónlist: Ólafur Arnalds og fleiri úningar: Eva Signý Berger
Ljósahönnun: Jóhann Bjarni Pálmason ljóðmynd: Baldvin Magnússon
Leikur og brúðustjórnun: Helga Arnalds og Hallveig Thorlacius

SÝNINGAR FYRIR SKÓLAHÓPA Á VIRKUMDÖGUM Í KÚLUNNI KL. 10:30 og 14:00

Gestaleikur frá Leikhúsinu 10 fingrum og Sögusvuntunni.



Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 1800 kr.

12 ára og yngri: 1800 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
29.10.2011 
Svið:
Kúlan 
Lengd:
0 klst. 50 mín. 



Letur breytingar


Leit