Danssýning ætluð börnum frá sex mánaða til þriggja ára
Skýjaborg er danssýning sem er sérstaklega hugsuð fyrir yngstu börnin þar sem litir, form, ljós og tónlist tala til barnanna. Verkið fjallar um tvær verur sem vakna furðulostnar upp á ókunnum stað. Þegar þær eru að byrja að ná áttum fer vindurinn skyndilega að blása og umhverfið breytist. Á þessum dularfulla stað eru sífelld veðrabrigði, stundum er veðrið ógnvænlegt, stundum gott og blítt og verurnar verða því stöðugt að takast á við nýjar aðstæður. Sýningin tekur tæpan hálftíma en í lok hennar er börnunum boðið að koma á sviðið til að leika sér, hitta verurnar og skoða leikmyndina.
Tónlist: Sólrún Sumarliðadóttir
Sviðsmynd, leikmunir og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir og Tessa-Sillars Powell
Dansarar: Inga Maren Rúnarsdóttir og Snædís Lilja Ingadóttir.
Hér koma sýningardagarnir...