Ævintýraferð í leikhúsið fyrir börn á aldrinum 3ja til 8 ára, þar sem börnin kynnast leikhúsinu og spunnið er og leikið út frá gamla ævintýrinu um Hlina kóngsson.
Þjóðleikhúsið hefur nú þrjú ár í röð boðið börnum á elstu deildum leikskóla í leikhúsið að njóta Sögustundar með leikhúsívafi og fræðast um leikhúsið, og á hverju hausti hafa vel á fimmta þúsund leikskólabörn frá allflestum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu komið í heimsókn. Sögustund er nú tekin til almennra sýninga á laugardögum. Sýnt er í Kúlunni, barnaleikhúsi Þjóðleikhússins og miðaverð er 1.800 kr.
Boðið er upp á Sögustund fyrir leikskóla í Kúlunni frá 21. september.
Almennar sýningar í Kúlunni frá 1. október. Miðaverð: 1.800 kr.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Sigurðsson, thorhallur@leikhusid.is
Leikstjórn: Friðrik Friðriksson
Leikmynd: Friðrik Friðriksson og Trygve J. Eliassen
Búningar: Ásdís Guðný Guðmundsdóttir og hópurinn
Grímugerð: Ásta Jónsdóttir
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Handrit: Friðrik Friðriksson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Ævar Þór Benediktsson
Tónlist og söngtextar: Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Ævar Þór Benediktsson
Upptökustjórn: Kristinn Gauti Einarsson
Leikarar: Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Ævar Þór Benediktsson