Bakaríið er nýr tilraunaleikhópur á sviði brúðuleikhúss og myndræns leikhúss. Meðlimir hópsins eru með ólíkan bakgrunn en eiga það sameiginlegt að vera heillaðir af brúðuleikhúsi og vilja rannsaka möguleika þess.
Með berum augum er verk í vinnslu sem kemur fyrir sjónir áhorfenda eftir að aðstandendur þess hafa starfað í þrjár vikur undir handleiðslu Rene Baker frá Bretlandi. Rene Baker hefur þróað nýja nálgun við myndrænt leikhús og notar aðferðir spunaleikhússins þar sem hópurinn spinnur sýninguna saman án handrits. Aðferðin byggist á því að nálgast efniviðinn sem vinna á með, og getur verið af margvíslegu tagi, með opnum huga, algjörlega á hans eigin forsendum og rannsaka eiginleika hans í gegnum ýmsar spunaæfingar þar sem er hlustað, horft, snert, smakkað, hrifist og fundinn ”takturinn” í efninu. Í stað þess að þröngva fyrirframgefnum hugmyndum og ákvörðunum upp á efnið er efnið notað sem upphafspunktur.
Leikstjóri: Helga Arnalds
Leiðbeinandi: Rene Baker
Höfundar og hönnuðir: Eva Signý Berger, Helga Arnalds, Högni Sigurþórsson, Karolina Boguslawska, Katerina Fojtikova, Rene Baker, Sigríður Sunna Reynisdóttir
Flytjendur: Sigríður Sunna Reynisdóttir, Eva Signý Berger, Karolina Boguslawska,
Katerina Fojtikova, Högni Sigurþórsson
Hér koma sýningardagarnir...