Leitin að jólunum

eftir Þorvald Þorsteinsson og Árna Egilsson

Leitin að jólunum

Hið árlega aðventuævintýri Þjóðleikhússins. Sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins þegar hún var frumsýnd árið 2005.
 
Aðventuævintýri Þjóðleikhússins, Leitin að jólunum, verður sýnt í desember sjöunda leikárið í röð, en sýningin hefur jafnan notið mikilla vinsælda og hlaut Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins þegar hún var frumsýnd. Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og þessi fjörugi hópur leiðir börnin með leik og söng um leikhúsið. Börnin ferðast inn í ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin í gamla daga og á okkar tímum.
 

 

Hér koma sýningardagarnir...

Verð

Fullorðnir: 1800 kr.

12 ára og yngri: 1800 kr.

Um sýninguna

Frumsýning:
26.11.2005 
Svið:
Leikhúsloftið 
Lengd:
 



Letur breytingar


Leit