Rómuð sýning snýr aftur í Þjóðleikhúsið eftir sigurgöngu á leikferð víða um heim
Hin rómaða sýning Vesturports á Hamskiptunum snýr nú aftur í Þjóðleikhúsið, en einungis verða örfáar sýningar á verkinu nú. Það er því um að gera að láta sýninguna ekki fram hjá sér fara, en hún hefur ferðast víða um heim og fengið frábærar viðtökur. Eftir sýningar í Þjóðleikhúsinu nú tekur við sýningartímabil í BAM leikhúsinu í New York.
Hamskiptin var frumsýnd í Lyric Hammersmith leikhúsinu í London fyrir tveimur árum og hlaut þá tilnefningu til Evening Standard verðlaunanna. Í kjölfarið var sýningin endurfrumsýnd í nýrri íslenskri gerð hér Þjóðleikhúsinu. Hætta þurfti sýningum fyrir fullu húsi, og í lok leikárs hlutu Hamskiptin Grímuverðlaunin sem leiksýning ársins.
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri - aðeins örfáar sýningar!
Hamskiptin eftir Franz Kafka er ein af þekktustu skáldsögum 20. aldarinnar. Sagan þykir í senn skelfileg og bráðfyndin en þar segir frá sölumanninum Gregor Samsa, sem vaknar upp einn morguninn í líki risavaxinnar bjöllu. Hin ofurhversdagslega Samsa-fjölskylda sogast á svipstundu inn í einkennilega martröð.
*****The Guardian, Michael Billington
“85 mínútna meistaraverk” Daily Mail