Geysivinsæl afmælissýning Þjóðleikhússins - magnað verk í hrífandi uppfærslu!
„Vont er þeirra ránglæti, verra þeirra réttlæti“.
Athugið að sýningar hefjast kl. 19. Ljúffengar veitingar í hléi, pantið fyrirfram í miðasölu.
Íslandsklukkan var frumsýnd þann 22. apríl á liðnu vori, í tilefni af 60 ára afmæli Þjóðleikhússins. Sýningin fékk frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda og var sýnd fyrir fullu húsi fram á sumar. Sýningin fékk11 tilnefningar til Grímunnar, meðal annars sem sýning ársins, og hlaut fern Grímuverðlaun. Ingvar E. Sigurðsson hlaut Grímuna fyrir túlkun sína á Jóni Hreggviðssyni og Björn Thors hlaut Grímuna fyrir leik sinn í hlutverki Magnúsar í Bræðratungu. Einnig fengu höfundar tónlistar og búninga sýningarinnar Grímuna.
Íslandsklukkan hefur í gegnum tíðina notið gífurlegra vinsælda hjá íslensku þjóðinni, jafnt á bók sem á leiksviði. Verkið var fyrst sett á svið þegar Þjóðleikhúsið var vígt árið 1950 og var sú sýning ein af þremur opnunarsýningum leikhússins. Svipmiklar aðalpersónur verksins, Jón Hreggviðsson, Snæfríður Íslandssól og Arnas Arnæus, hafa eignast vissan stað í hjarta Íslendinga. Í því þjóðfélagslega umróti sem við lifum nú, á þetta stórvirki um tilvistarspurningar sem lítil þjóð stendur frammi fyrir brýnt erindi við okkur.
Íslandsklukkan gerist á miklu niðurlægingarskeiði í sögu íslensku þjóðarinnar, alþýðan býr við fátækt og skort, þarf að þola hörku og vægðarleysi yfirvalda og landið logar af deilum valdamikilla hagsmunaaðila. En, eins og alltaf, þá elskar fólk og á sér vonir og drauma. Saga þjóðarinnar og dramatísk örlög einstaklinga tvinnast saman í sígildu verki um niðurlægingu og reisn, mótlæti, vonbrigði og hugrekki.
Sjáðu myndband úr Íslandsklukkunni
Sýning Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni verður liður í opnunardagskrá hins nýja menningarhúss Akureyringa, Hofs. Sýningar í Hofi í lok nóvember.
“Merkilegast er að hrunsaga þjóðarinnar, ris hennar, fall, brestir og brengluð sjálfsmynd hefur öll verið skjalfest áður. Það gerði Halldór Laxness í Íslandsklukku sinni. Þá bók hafa nú hantérað fyrir leiksvið Benedikt Erlingsson og allt hans fólk. Það er allt gert af smekkvísi og með prýði. ... erindi þessarar leiksýningar við okkur öll er ærið.”
Guðmundur Brynjólfsson, Morgunblaðið.
“Góð sýning þar sem leikhúsið er leikhús og öll textameðferð til fyrirmyndar.”
Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.